Ferill 554. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 943 – 554. mál.
Frumvarp til innheimtulaga.
(Lagt fyrir Alþingi á 122. löggjafarþingi 1997–98.)
I. KAFLI
Gildissvið o.fl.
1. gr.
Gildissvið.
Innheimtuaðili er einstaklingur eða lögaðili sem annast innheimtu.
2. gr.
Frávíkjanleg ákvæði.
II. KAFLI
Skilyrði til að mega stunda innheimtu.
3. gr.
Skilyrði til að mega stunda innheimtu fyrir aðra.
a. að þeir hafi fengið innheimtuleyfi skv. 15. gr., sbr. 4. gr.;
b. að innheimtan sé stunduð frá fastri starfsstöð hér á landi nema annað leiði af alþjóðasamningum sem binda Ísland; og
c. að starfsábyrgðartrygging skv. 14. gr. sé í gildi.
Lögmenn mega þó stunda innheimtu án innheimtuleyfis, svo og opinberir aðilar, viðskipta
4. gr.
Veiting innheimtuleyfis.
a. er lögráða og hefur undanfarin fimm ár hvorki farið fram á eða verið í greiðslustöðvun né bú hans verið undir gjaldþrotaskiptum;
b. hefur óflekkað mannorð svo sem áskilið er til kjörgengis við kosningar til Alþingis;
c. hefur lögheimili hér á landi nema annað leiði af alþjóðasamningum sem binda Ísland.
5. gr.
Innheimta eigin peningakröfu.
III. KAFLI
Samband innheimtuaðila og skuldara.
6. gr.
Góðir innheimtuhættir.
7. gr.
Innheimtuviðvörun.
Í viðvörun komi fram:
a. nöfn, kennitölur og heimilisföng skuldara, kröfuhafa og innheimtuaðila;
b. lýsing á kröfu;
c. fjárhæð kröfu og skal sundurliða hver sé höfuðstóll og hverjar séu viðbótarkröfur, svo sem dráttarvextir og innheimtuþóknun;
d. frá hvaða degi dráttarvextir reiknast;
e. greiðslustaður; og
f. að greiðslufall skuldara geti leitt til málshöfðunar eða annarra innheimtuaðgerða á grundvelli réttarfarslaga og aukins kostnaðar fyrir skuldara.
Krafa telst greidd ef greiðsla hefur borist áður en fresturinn er liðinn.
Ef hætta er á að möguleikum á fullnustu kröfu verði spillt má víkja frá ákvæðum þessarar greinar um sendingu viðvörunar.
Ef skuldari hefur sannanlega hreyft mótbárum gegn peningakröfu er heimilt að bera ágrein
8. gr.
Umboð innheimtuaðila.
IV. KAFLI
Samband innheimtuaðila og kröfuhafa.
9. gr.
Upplýsingaskylda innheimtuaðila.
10. gr.
Meðferð innheimtufjár.
Innheimtuaðili, sem stundar innheimtu fyrir aðra, skal halda innheimtufénu aðskildu frá eigin fé. Skal féð án ástæðulauss dráttar lagt á vörslufjárreikning en opinberir aðilar, viðskiptabankar og sparisjóðir, sem mega stunda innheimtu án innheimtuleyfis skv. 2. mgr. 3. gr., eru þó undanþegnir þessari skyldu. Sérákvæði um vörslufjárreikninga lögmanna haldast.
V. KAFLI
Greiðsla innheimtukostnaðar og hámarksfjárhæð hans.
11. gr.
Ábyrgð skuldara á greiðslu innheimtukostnaðar.
12. gr.
Hámarksfjárhæð innheimtukostnaðar.
VI. KAFLI
Ýmis ákvæði.
13. gr.
Þagnarskylda.
14. gr.
Starfsábyrgðartrygging.
Ef leyfishafi hefur samhliða innheimtustarfsemi með höndum lögmannsstörf og hefur ábyrgðartryggingu telst hann hafa fullnægt tryggingarskyldu sinni samkvæmt lögum þessum.
15. gr.
Leyfi og eftirlit.
Bankaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur eftirlit með að innheimtustarfsemi, sem lög þessi
taka til, sé í samræmi við ákvæði laganna, reglur á grundvelli þeirra og eftir atvikum sam
Bankaeftirlitið getur gefið innheimtuaðilum fyrirmæli um að breyta starfsháttum sínum ef hætta er á því að þeir brjóti í bága við lög þessi. Áður en til fyrirmæla kemur getur eftirlitið lokið málinu með sátt. Hafi sátt komist á gildir hún sem fyrirmæli.
Bankaeftirlitið getur til bráðabirgða lagt bann við leyfisbundinni innheimtustarfsemi, ef skilyrðum 1. mgr. 3. gr. er ekki fullnægt, eða gefið innheimtuaðila frest til að fullnægja þeim. Verði eigi úr bætt skal bankaeftirlitið gera tillögu til ráðherra um sviptingu leyfis.
Um eftirlitið fer samkvæmt lögum þessum, svo og lögum um Seðlabanka Íslands eftir því sem við á.
Gagnvart lögmönnum fer stjórn Lögmannafélags Íslands með eftirlit samkvæmt lögum þessum.
16. gr.
Svipting innheimtuleyfis.
a. hann hefur brotið gegn skyldum sínum samkvæmt lögum þessum; eða
b. skilyrði fyrir veitingu leyfis eru ekki lengur til staðar.
17. gr.
Refsingar.
Með mál út af brotum á lögum þessum skal fara að hætti opinberra mála.
18. gr.
Reglugerðarheimild.
19. gr.
Gildistaka.
Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
Frumvarp þetta er byggt á frumvarpi, sömdu af nefnd sem viðskiptaráðherra skipaði snemma á árinu 1996. Í nefndinni sátu Atli Freyr Guðmundsson skrifstofustjóri, formaður, Eggert B. Ólafsson héraðsdómslögmaður, Jón Ögmundur Þormóðsson skrifstofustjóri, Magnús Haukur Magnússon héraðsdómslögmaður og Sigríður A. Arnardóttir lögfræðingur. Áður hafði verið unnið að undirbúningi undir frumvarpsgerð. Sumarið 1996 var frumvarpið sent fjölmörgum aðilum til umsagnar og bárust margar athugasemdir sem unnið var úr í viðskiptaráðuneytinu. Síðan tók nefndin frumvarpið til meðferðar að nýju og gerði á því ýmsar breytingar. Lárus L. Blöndal héraðsdómslögmaður hafði þá tekið sæti í nefndinni í stað Magnúsar Hauks Magnússonar og Þuríður Jónsdóttir héraðsdómslögmaður kom í stað Sigríðar A. Arnardóttur.
Markmiðið með frumvarpinu er einkum að setja ákveðnar meginreglur um innheimtu til hagsbóta fyrir neytendur, m.a. ákvæði um góða innheimtuhætti og innheimtuviðvörun, og draga úr óeðlilegum kostnaði skuldara vegna innheimtuaðgerða á frumstigi, t.d. með því að takmarka í reglugerð hámarksfjárhæð innheimtukostnaðar, m.a. þóknunar, sem heimilt er að krefja hann um. Með viðvörun væri stefnt að því að skuldarar almennt ættu kost á að greiða skuld sína innan stutts frests með lágmarkskostnaði er grundvallaðist á ákvörðun í reglugerð áður en til innheimtuaðgerða á grundvelli réttarfarslaga yrði gripið. Lánardrottinn mundi væntanlega á þessu stigi innheimtu sjálfur senda skuldara viðvörun. Hann gæti þó leitað aðstoðar lögmanns eða annars innheimtuaðila en bæri þá sjálfur ábyrgð á hugsanlegri greiðslu til hans umfram lágmarkskostnað.
Við samningu frumvarpsins, sem snertir m.a. innheimtustarfsemi lögmanna, viðskipta
Samkvæmt frumvarpinu mundu innheimtulög skiptast í sex kafla. Ákvæði I. kafla fjalla um gildissvið o.fl. Þar kemur m.a. fram að lögin gildi með vissum undantekningum um innheimtu gjaldfallinna krafna um greiðslu peninga og að unnt sé með samningi að víkja frá sumum ákvæðum laganna. Í II. kafla er fjallað um skilyrði til að mega stunda innheimtu, m.a. innheimtuleyfi. Í III. kafla er að finna ákvæði um samband innheimtuaðila, m.a. kröfuhafa, og skuldara, m.a. um góða innheimtuhætti og innheimtuviðvörun, en í IV. kafla eru ákvæði um samband innheimtuaðila og kröfuhafa, nánar tiltekið upplýsingaskyldu innheimtuaðila og meðferð innheimtufjár. Í V. kafla eru ákvæði um greiðslu innheimtukostnaðar og hámarks
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Innheimta opinberra aðila á sköttum og gjöldum fellur ekki undir lögin. Þykir eigi þörf á slíku þar eð innheimta skatta og gjalda er lögbundin og enginn kostnaður, annar en lögbundinn vaxtakostnaður, fellur á gjaldendur nema um sé að ræða útlagðan kostnað. Innheimta slíkra krafna er þannig almennt mun kostnaðarminni en almenn kröfuinnheimta. Virðist því réttur greiðenda í þeim fjölmörgu málum, sem hér um ræðir, vera nægilega tryggður samkvæmt gildandi lögum og verklagsreglum.
Innheimtuaðgerðir á grundvelli réttarfarslaga falla heldur ekki undir innheimtu samkvæmt frumvarpi þessu. Sem dæmi um kostnað, sem væri utan ramma fyrirhugaðra laga, væri kostn
Innheimta umdeildra peningakrafna, þar sem þörf hefur verið á sérfræðilegri ráðgjöf, fellur heldur ekki undir fyrirhuguð lög. Hér getur t.d. verið um að ræða lögfræðilega aðstoð vegna umferðarslyss.
Í 2. mgr. kemur fram að innheimtuaðilar séu einstaklingar og lögaðilar sem annast innheimtu. Hugtakið innheimtuaðili tekur yfir kröfuhafa nema annað komi fram. Svo sem fram kemur í 1. mgr. getur innheimtan verið fyrir aðra eða vegna eigin starfsemi. Innheimta launþega á launakröfu sinni félli samkvæmt þessu ekki undir lögin, t.d. ákvæðin um sendingu innheimtuviðvörunar.
Um 2. gr.
Ef skuldari hefur á hinn bóginn gengist undir skuldbindingar sem almennur neytandi en ekki vegna atvinnurekstrar síns verður ekki vikið frá ákvæðum 7. gr. um innheimtuviðvörun. Skiptir þá ekki máli hvort skuldbindingar þessa neytanda eiga rætur að rekja til kaupa hans t.d. á hvers kyns vöru eða þjónustu. Þannig verður skylda til sendingar innheimtuviðvörunar ekki felld niður eða frestur til greiðslu eftir sendingu viðvörunar ákveðinn styttri en tíu dagar eins og mælt er fyrir um í 7. gr.
Samkvæmt 2. málsl. greinarinnar geta kröfuhafi og innheimtuaðili með samningi sín á milli vikið frá ákvæðum 9. gr. um upplýsingaskyldu innheimtuaðila og 1. mgr. 10. gr. um greiðslu innheimtufjár.
Önnur ákvæði laganna eru ófrávíkjanleg.
Um 3. gr.
Samkvæmt 2. mgr. þessarar greinar þurfa vissir aðilar þó ekki innheimtuleyfi til að mega stunda innheimtu fyrir aðra, með öðrum orðum lögmenn, viðskiptabankar og sparisjóðir og opinberir aðilar, m.a. Húsnæðisstofnun. Þeir sem stunda innheimtu vegna eigin starfsemi þurfa almennt ekki innheimtuleyfi enda tekur 3. gr., sem mælir fyrir um innheimtuleyfi, aðeins til innheimtu fyrir aðra. Skv. 5. gr. mundi aðili þó þurfa innheimtuleyfi ef hann kaupir kröfur í þeim tilgangi að innheimta þær sjálfur í atvinnuskyni.
Samkvæmt c-lið 1. mgr. þessarar greinar nægir ekki að starfsábyrgðartrygging samkvæmt 14. gr. sé tekin heldur þarf innheimtuaðili jafnframt að sjá til þess að hún sé ætíð í gildi.
Um 4. gr.
Tekið skal fram að í 3. gr. laga nr. 80/1987, um kosningar til Alþingis, segir svo um óflekk
Um 5. gr.
Um 6. gr.
Hér er um vísireglu að ræða svipað og sjá má t.d. í 20. gr. samkeppnislaga, nr. 8/1993, um góða viðskiptahætti í atvinnustarfsemi. Krafan um góða innheimtuhætti gildir bæði um samskipti innheimtuaðila við skuldara og kröfuhafa þótt kaflaheitið gangi skemmra . Í framkvæmd skiptir reglan þó væntanlega mestu máli um samskipti innheimtuaðila og skuldara. Vernd ákvæðisins getur þá náð til fjölskyldu skuldara, atvinnurekenda hans og kunningja hans. Gæta verður góðra innheimtuhátta við sérhverja ráðstöfun eða athöfn sem er þáttur í innheimtunni.
Í norsku lögunum og danska lagafrumvarpinu er beinlínis tekið fram að það brjóti í bága við góða innheimtuhætti að beita óhæfilegum þrýstingi, tjóni eða óþægindum. Er um að ræða nánari útfærslu á meginreglunni um góða innheimtuhætti.
Um samband innheimtuaðila og kröfuhafa gildir sú meginregla að innheimtuaðila ber að fylgja fyrirmælum kröfuhafans. Á innheimtuaðilanum hvílir samt sem áður sú sjálfstæða skylda að hlýðnast ekki fyrirmælum kröfuhafa ef þau fela í sér eitthvað sem stríðir gegn góðum innheimtuháttum samkvæmt lögunum eða reglugerð á grundvelli þeirra.
Innheimtuaðili ætti ekki að taka að sér innheimtu kröfu ef hann hefur fjárhagslegra hagsmuna að gæta sem gætu farið í bága við hagsmuni kröfuhafans.
Sé aftur vikið að skiptum innheimtuaðila og skuldara gildir sú regla að innheimtuaðili á ekki að gefa skuldara rangar eða villandi upplýsingar um staðreyndir eða réttarreglur sem eru mikilvægar fyrir afstöðu hans til kröfunnar.
Það getur brotið gegn góðum viðskiptaháttum ef beitt er hótunum um að veita öðrum upplýsingar um stöðu skuldara, svo sem maka, atvinnurekanda eða kunningjum. Öðruvísi stendur á þegar um er að ræða aðra sem tengdir eru málinu á einn eða annan hátt, t.d. samskuldara eða ábyrgðarmann.
Það getur brotið gegn góðum innheimtuháttum að hóta að birta opinberlega upplýsingar um greiðsluhæfi skuldara í frekari mæli en heimilt er að lögum.
Endanlegt úrlausnarvald um það hvað teljist góðir innheimtuhættir er að sjálfsögðu í höndum dómstóla.
Um 7. gr.
Samkvæmt 1. málsl. 1. mgr. skal senda eina viðvörun og gefa skuldara færi á að greiða kröfu innan ákveðins frests. Hugtakið skuldari er hér notað í víðri merkingu þannig að senda þarf viðvörunina öllum þeim sem kröfuhafi eða innheimtuaðili hyggst beina innheimtu
Fresturinn telst frá sendingu viðvörunar. Í þessu felst að skuldari ber hallann af seinkun í pósti og því að viðvörunin komi ekki fram enda hafi hún verið send á nægilega tryggan hátt og á heimilisfang þar sem gild ástæða er til að ætla að unnt sé að ná til skuldara. Sending í almennum pósti telst vera tryggur sendingarháttur og því er ekki gerð krafa til þess að viðvörun sé send í ábyrgðarbréfi . Ef kröfuhafi eða innheimtuaðili hafa ekki ástæðu til að ætla að hafa megi upp á skuldara á öðru heimilisfangi verður almennt að teljast nægilegt að senda viðvörunina á það heimilisfang sem skuldarinn gaf kröfuhafanum. Ef ekkert heimilisfang var gefið upp telst almennt fullnægjandi að senda hana á lögheimili samkvæmt þjóðskrá.
Skv. 2. málsl. 1. mgr. er ekki skylt að senda innheimtuviðvörun vegna viðskiptabréfakrafna eða annarra krafna þar sem farið er beint í aðför eða nauðungaruppboð á grundvelli heimildar í lögum. Ef ekki er hins vegar farið beint í þessar aðgerðir heldur sent innheimtubréf gilda almennar reglur laganna um viðvörun, sbr. nánar það sem segir í athugasemdum við 1. gr.
Í 2. mgr. er tekið fram hvað skuli standa í innheimtuviðvörun. Eins og segir í athugasemdum við 1. gr. er það svipað og venja er í innheimtubréfum nú.
Í 3. mgr. segir að krafa teljist greidd ef greiðsla hefur borist áður en settur frestur er liðinn. Nægilegt er að greiðslan berist t.d. banka eða sparisjóði.
Í 4. og 5. mgr. er veitt heimild til að víkja frá ákvæðum greinarinnar um sendingu innheimtuviðvörunar í sérstökum tilvikum.
Samkvæmt 4. mgr. má víkja frá ákvæðunum ef hætta er á að möguleikum á fullnustu kröfu verði spillt. Nefna má hættu á að krafan fyrnist ef mál er ekki höfðað. Undir öllum kringumstæðum verður einungis vikið frá ákvæðunum að því marki sem nauðsynlegt er til að koma í veg fyrir hættu á að fullnustumöguleikum verði spillt. Ef unnt er að fylgja ákvæðunum án þess að hættan aukist er innheimtuaðila það skylt.
Í 5. mgr. er tekið á því ef skuldari hreyfir sannanlega mótbárum gegn peningakröfu. Þá er innheimtuaðila heimilt að hverfa frá venjulegum innheimtuaðferðum, sem ella er skylt að gæta, og bera ágreining um réttmæti kröfunnar undir dómstóla. Í slíkum tilvikum er það meginreglan að innheimtuaðili þarf ekki að taka afstöðu til þess hvort mótbáran sé studd efnislegum rökum eða aðeins tilraun skuldara til að draga að greiða kröfuna.
Til frekari skýringar er vísað til athugasemda við 1. gr. um að viðvörun geti komið í stað innheimtubréfa, svo og tengsl viðvörunar við innheimtuaðgerðir á grundvelli réttarfarslaga, en almennt má ætla að viðvörunin yrði undanfari slíkra aðgerða. Kjósi aðili að senda skuldara ítrekun yrði það að teljast heimilt enda sé ekki í undantekningartilvikum brotið með því í bága við regluna um góða innheimtuhætti.
Um 8. gr.
Samningar um greiðslu skulu vera skriflegir en þó því aðeins að skuldari óski þess.
Um 9. gr.
Grein þessi um upplýsingaskylduna er frávíkjanleg, sbr. 2. gr.
Um 10. gr.
Í 2. mgr., sem er ekki frávíkjanleg, er kveðið á um skyldu innheimtuaðila, sem stunda innheimtu fyrir aðra, til að halda innheimtufé aðskildu frá eigin fé. Til að fullnægja þeirri kröfu þarf að leggja féð á vörslufjárreikninga þannig að það verði ekki dregið undir gjald
Nefna má í þessu sambandi að í reglum nr. 626/1995 um fjárvörslur lögmanna o.fl., sem stjórn Lögmannafélags Íslands setti á grundvelli laga um málflytjendur og staðfestar voru af dómsmálaráðherra, segir í 2. gr. að reglurnar taki til lögmanna sem varðveita í eigin nafni fjármuni fyrir hönd umbjóðenda sinna. Í 4. gr. segir að fjárhæð, sem samsvarar stöðu fjár
Gengið er út frá því að í almennri reglugerðarheimild ráðherra felist heimild til að setja reglur um fjárvörslureikninga.
Um 11. gr.
Um 12. gr.
Með því að setja ákvæði um hámark þóknunar má stuðla að því að kröfur á hendur skuldara, þar sem skuldari hefur ekkert val um innheimtuaðila, verði ekki strax sendar í óeðli
Um 13. gr.
Um 14. gr.
Um 15. gr.
Þá er í 2. mgr. gert er ráð fyrir að bankaeftirlit Seðlabanka Íslands hafi almennt eftirlit með innheimtustarfsemi á grundvelli laganna. Bankaeftirlitið gegnir nú þegar eftirlitshlutverki á grundvelli annarra laga.
Í 3. mgr. eru ákvæði um heimild bankaeftirlitsins til að gefa innheimtuaðilum, m.a. kröfuhöfum, fyrirmæli um að breyta starfsháttum sínum og jafnframt um lok máls með sátt er gildi sem fyrirmæli.
Í 4. mgr. er heimild til að banna leyfisbundna innheimtustarfsemi til bráðabirgða. Verði eigi úr bætt skal bankaeftirlitið gera tillögu til ráðherra um sviptingu leyfis.
Samkvæmt 6. mgr. er gert ráð fyrir þeirri undantekningu að stjórn Lögmannafélags Íslands fari gagnvart lögmönnum með eftirlit með framkvæmd innheimtulaga. Stjórnin hefur haft eftirlit með starfsemi lögmanna sem stunda innheimtu auk annarra starfa, m.a. eftirlit með gjaldtöku þeirra, vörslufjárreikningum og starfsábyrgðartryggingu. Væri stjórnin ekki með þetta eftirlit yrði eftirlit með innheimtu á frumstigi samkvæmt innheimtulögum hjá banka
Um 16. gr.
Um 17. gr.
Um 18. gr.
Um 19. gr.
Fylgiskjal.
Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:
Umsögn um frumvarp til innheimtulaga.