Ferill 586. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 993 – 586. mál.



Fyrirspurn



til samgönguráðherra um köfun niður að Æsu ÍS 87.

Frá Kristni H. Gunnarssyni.



1.      Hver varð heildarkostnaður við köfun niður að Æsu ÍS 87 á síðasta ári, þar með talinn kostnaður vegna varðskips með áhöfn, lögregluyfirvalda, Siglingastofnunar og ID-nefnd ar?
2.      Hvaða íslenskir aðilar buðust til þess að taka verkið að sér, hvert var tilboð þeirra, hvenær var tilboði þeirra svarað og hvers vegna var því hafnað?
3.      Hvers vegna var verkið ekki boðið út?