Ferill 590. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 998 – 590. mál.



Fyrirspurn



til samgönguráðherra um stöðugleika og öryggisbúnað skipa.

Frá Kristjáni Pálssyni.



     1.      Hve mörg skip eru með haffærisskírteini en uppfylla ekki kröfur um stöðugleika samkvæmt skýrslu Siglingastofnunar Íslands frá síðasta ári og hvaða skip eru það?
     2.      Hve mörg skip eru með haffærisskírteini en hafa fengið athugasemdir við öryggisbúnað?
     3.      Hve mörg skip eru með athugasemdir í haffærisskírteini á fresti?