Ferill 688. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 1191 – 688. mál.



Fyrirspurn



til heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra um tóbaksvarnir.

Frá Sigríði A. Þórðardóttur.



     1.      Hver er reynslan af þeirri hækkun sem varð á framlagi til tóbaksvarna á árinu 1996 þegar lögfest var að 0,7% af brúttósölu tóbaks í stað 0,2% áður skyldi varið til tóbaksvarna?
     2.      Hvernig hefur þessum fjármunum verið varið?
     3.      Hvernig hyggst tóbaksvarnanefnd bregðast við endurteknum niðurstöðum kannana sem sýna að reykingar hafa aukist hjá ungu fólki?