Ferill 542. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 1210 – 542. mál.
Nefndarálit
um frv. til l. um breyt. á l. nr. 34 17. júní 1944, um þjóðfána Íslendinga.
Frá allsherjarnefnd.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Kristján Andra Stefánsson frá for
Frumvarpið felur í sér nokkrar breytingar á lögum um þjóðfána Íslendinga. Helstu breyt
Í nefndinni komu fram þau sjónarmið að æskilegt væri að almenningur notaði fánann meira en raun ber vitni. Leggur nefndin áherslu á að forsætisráðuneytið beiti sér á ný fyrir útgáfu handbókar um meðferð og notkun fánans og geri reglur þar um aðgengilegar almenn
Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með breytingum sem lagðar eru til í sérstöku þingskjali. Helstu efnisatriði breytinganna eru eftirfarandi:
1. Í fyrsta lagi er lagt til að fellt verði brott ákvæði 3. mgr. 12. gr. laganna þess efnis að einstökum stjórnmálaflokkum sé óheimilt að nota þjóðfána í áróðursskyni við kosninga-undirbúning eða kosningar. Þykir takmörkun í lögum af þessu tagi sem aðeins nær til stjórnmálaflokka óeðlileg. Í lögskýringargögnum er ekki að finna skýringar á því að hvaða markmiði var stefnt með bannákvæðinu, en hafi ákvæðinu verið stefnt gegn því að einhver stjórnmálaflokkur reyndi að helga sér þjóðfánann umfram aðra flokka eða gerði hann að auðkenni sínu í auglýsingum virðist því markmiði þegar vera náð með banni 2. mgr. 12. gr. þar sem kveðið er á um að félögum sé óheimilt að nota þjóðfánann sem sitt einka- eða auðkennismerki.
2. Í öðru lagi er lagt til að bætt verði við lögin nýju ákvæði þar sem kveðið er á um að skjaldarmerki Íslands sé auðkenni stjórnvalda ríkisins og að notkun þess sé þeim einum heimil. Lagt er til að ákvæði þessu verði bætt við lögin í stað þess að setja sérstök lög um skjaldarmerki Íslands þar sem slíkt er mun einfaldara og viðaminna í framkvæmd. Af þessari breytingu leiðir að gera verður til samræmingar breytingu á 2. mgr. 29. gr. samkeppnislaga, nr. 8/1993, sbr. breytingartillögu nefndarinnar við 11. gr. frumvarps
3. Einnig er lögð til orðalagsbreyting á reglugerðarheimild í 13. gr. laganna.
4. Þá er lögð til breyting á 14. gr. laganna þess efnis að orðið varðhald verði fellt brott úr greininni til samræmis við frumvarp dómsmálaráðherra sem liggur fyrir þinginu um af
5. Loks er lagt til að gerð verði breyting á ákvæði 1. mgr. 32. gr. laga um vörumerki, nr. 45/1997, en þar eru tæmandi talin skilyrði þess að vörumerki verði afmáð úr vöru
Hjálmar Jónsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.
Alþingi, 18. apríl 1998.
Sólveig Pétursdóttir,
form., frsm.
Valgerður Sverrisdóttir.
Jóhanna Sigurðardóttir.
Árni R. Árnason.
Bryndís Hlöðversdóttir.
Jón Kristjánsson.
Kristján Pálsson.
Guðný Guðbjörnsdóttir.