Ferill 696. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 1218 – 696. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum nr. 88 27. maí 1997, um fjárreiður ríkisins.
Flm.: Jóhanna Sigurðardóttir, Ágúst Einarsson, Bryndís Hlöðversdóttir,
Guðný Guðbjörnsdóttir, Ásta R. Jóhannesdóttir, Lúðvík Bergvinsson,
Kristín Halldórsdóttir, Ögmundur Jónasson.
1. gr.
Ársreikningi ríkisaðila skal fylgja sundurliðað yfirlit um launagreiðslur, bifreiða-, ferða- og risnukostnað. Sundurliðun einstakra þátta skal vera þannig:
1. Launagreiðslur:
a. Heildarlaunagreiðslur.
b. Föst yfirvinna.
c. Önnur yfirvinna.
d. Hlutfall yfirvinnu í heildarlaunagreiðslum.
e. Upplýsingar um starfsmannafjölda.
f. Starfskjör stjórnenda.
2. Bifreiðakostnaður:
a. Fjöldi ríkisbifreiða og rekstrarkostnaður þeirra.
b. Notkun bílaleigubifreiða.
c. Notkun leigubifreiða.
d. Greiðslur fyrir afnot af bifreiðum starfsmanna.
e. Bifreiðakostnaður stjórnenda.
3. Risnukostnaður:
a. Föst risna greidd einstökum starfsmönnum.
b. Risna greidd samkvæmt reikningi.
c. Sundurliðun á helstu þáttum risnu og helstu tilefni hennar.
4. Ferðakostnaður:
a. Ferðakostnaður innan lands, þar með talin sundurliðun á dagpeningum, gistikostnaði og ferðakostnaði.
b. Ferðakostnaður utan lands, þar með talin sundurliðun á dagpeningum, gistikostnaði og ferðakostnaði.
2. gr.
Greinargerð.