Ferill 699. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 1229 – 699. mál.
Frumvarp til laga
um friðun Þingvalla og Þingvallavatns.
(Lagt fyrir Alþingi á 122. löggjafarþingi 1997–98.)
1. gr.
Mörk þjóðgarðsins á Þingvöllum skulu vera:
A. Hið friðhelga land: Að sunnan eru mörkin um línu sem dregin er úr landamerkjum jarðanna Arnarfells og Mjóaness á Langatanga, vestur yfir vatnið og í Grjótnes sem er á landamerkjum jarðanna Skálabrekku og Kárastaða. Þaðan ráða landamerki þeirra jarða að landamerkjum Selkots og síðan landamerki Selkots og Kárastaða að sýslumörkum Árnessýslu og Kjósarsýslu. Þaðan ráða sýslumörk til norðausturs í hátind Háusúlu og þaðan bein stefna til austurs í efsta tind Gatfells. Þaðan liggja mörkin til suðurs í Hrafnabjörg og með austur- og suðurmörkum jarðarinnar Gjábakka og með austurmörkum jarðarinnar Arnarfells í Langatanga.
B. Verndarsvæði: Að sunnan eru mörkin úr Stapa við Úlfljótsvatn (markapunktur milli Kaldárhöfða og Efribrúar í Grímsneshreppi) með hreppamörkum í Úlfljótsvatni, þ.e. miðlína, og allur farvegur Sogs að útfalli úr Þingvallavatni. Þaðan ráða bakkar Þing
Hið friðhelga land skal vera eign íslensku þjóðarinnar og er óheimilt að selja það eða veðsetja.
Þingvallanefnd getur ákveðið að hluti af hinu friðhelga landi, sem er innan landamerkja jarðanna Kárastaða, Brúsastaða, Svartagils, Gjábakka og Arnarfells, skuli, þar til annað verður ákveðið, falla undir verndarsvæði skv. B-lið og gilda þá um það landsvæði sömu reglur og gilda um verndarsvæðið samkvæmt lögum þessum. Auglýsing um ákvarðanir sam
2. gr.
Þingvallanefnd skal skipuð þremur alþingismönnum sem kjörnir eru hverju sinni að loknum kosningum til Alþingis. Nefndin kýs formann úr sínum hópi og skiptir að öðru leyti sjálf með sér verkum.
Forsætisráðuneytið fer með stjórnsýsluleg málefni þjóðgarðsins á Þingvöllum.
3. gr.
4. gr.
Þingvallanefnd setur nánari reglur um framkvæmd verndunarinnar, þar með talið um breytingar á vatnshæð og takmarkanir á losun úrgangsefna og um frárennsli og fráveitur í vatnið. Telji nefndin að slík losun í Þingvallavatn samrýmist ekki verndun vatnsins getur hún bannað hana.
Þrátt fyrir ákvæði laga um lax- og silungsveiði er óheimilt án leyfis Þingvallanefndar að stunda fiskirækt eða fiskeldi í eða við Þingvallavatn.
5. gr.
Þingvallanefnd skal hafa samráð við viðkomandi sveitarstjórnir og Náttúruvernd ríkisins um framkvæmd friðunar á þeim hluta þjóðgarðsins sem liggur utan hins friðhelga lands og er heimilt að semja um að Náttúruvernd ríkisins annist tiltekin verkefni við framkvæmd frið
6. gr.
7. gr.
Þingvallanefnd er heimilt, að fengnu samþykki forsætisráðherra, að taka eignarnámi ein
Hver sá er fyrir fjártjóni verður vegna friðunar samkvæmt lögum þessum á rétt til skaða
8. gr.
Þingvallanefnd getur einnig sett sérstakar tímabundnar reglur um umferð innan þjóð
9. gr.
10. gr.
11. gr.
Ákvæði til bráðabirgða.
Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
Núgildandi lög um friðun Þingvalla voru sett árið 1928. Frá því að lögin voru sett hafa öll viðhorf til náttúruverndar gjörbreyst auk þess sem umferð um þjóðgarðinn og næsta ná
Endurskoðun laganna hefur farið fram undir forsjá Þingvallanefndar. Með frum-varpinu er leitast við að móta verndarstefnu á þessu sviði til framtíðar og leiða til þess saman krafta Þingvallanefndar, heimamanna og stjórnvalda á sviði náttúruverndarmála.
Rannsóknir vísindamanna á Þingvallasvæðinu og sérstaklega Þingvallavatni og lífríki þess hafa enn orðið til að beina sjónum manna að mikilvægi þess að friða og vernda þetta landsvæði. Auk náttúrunnar eru orku- og neysluvatnsauðlindir svæðisins mikilvægar fyrir þjóðina. Talið er að á Þingvalla- og Brúarársvæðinu ofan við Brúarfoss, sem alls er um 1.300 ferkílómetrar, sé um þriðjungur af öllu lindarvatni í byggð á Íslandi. Þessi aðstaða auk hins sérstaka lífríkis Þingvallavatns hefur leitt til þess að Þingvallanefnd hefur talið nauð
Þá er í frumvarpi þessu lagt til að hið friðhelga land á Þingvöllum verði stækkað. Með þessum aðgerðum er stigið mikilvægt skref til að tryggja vernd hinnar sérstöku náttúru á svæðinu auk vatnsverndarinnar en jafnframt væri með samþykkt frumvarpsins lagður grunnur að mikilfenglegu útivistarsvæði fyrir landsmenn í næsta nágrenni við stærstu þétt
Helgistaðurinn á Þingvöllum er elsti en jafnframt minnsti þjóðgarður Íslendinga eða 40 km 2 að stærð. Ef frumvarp þetta verður að lögum mun hið friðhelga land verða 237 km 2 að stærð og verndarsvæði þjóðgarðsins allt að 1.193 km 2. Frá setningu laganna 1928 hefur þjóðinni fjölgað úr 110 þús. manns og búast má við að hún verði um 280 þús. árið 2000. Um 70% þjóðarinnar búa í rúmlega klukkustundar fjarlægð frá Þingvöllum. Telja má einstakt að hafa slíka náttúruperlu svo stutt frá þéttbýlasta svæði landsins enda er svæðið þegar vinsælt útivistarsvæði. Á undanförnum árum hefur umferð um norðurhluta svæðisins aukist verulega, jafnt utan vega sem á. Til að vernda viðkvæmt náttúrufar þarf að stýra umferð um svæðið. Vegna þessa er brýn þörf á aukinni friðun á svæðinu. Það svæði, sem lagt er til að falli undir þjóðgarðinn á Þingvöllum, er þegar að stórum hluta friðað á einn eða annan hátt eða jarðirnar í opinberri eigu. Hér er því ekki síst verið að koma á samræmdri vernd á stóru landsvæði og koma því undir sameiginlega stjórn. Nauðsynlegt er að gæta mjög þessarar náttúru í samráði við heimamenn og opinberar stofnanir sem lögum samkvæmt fjalla um breytingar á náttúrunni, svo sem Náttúruvernd ríkisins, og um vatnsvernd, mengun og fráveitur, svo sem Hollustuvernd ríkisins.
Athugasemdum við frumvarp þetta fylgja eftirtalin fylgiskjöl:
Nr. I Yfirlitsmynd af Þingvallasvæðinu, sem sýnir mörk þjóðgarðsins, skipt í hið friðhelga land og verndarsvæðið.
Nr. II Um Þingvelli, Þingvallavatn og vatnasvið þess, greinargerð unnin af dr. Pétri M. Jónassyni, prófessor.
Nr. III Umsögn fjárlagaskrifstofu fjármálaráðuneytis um kostnaðaráhrif.
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Í gildandi lögum um friðun Þingvalla er land það sem friðunin tekur til afmarkað annars vegar sem hið friðhelga land og er mörkum þess lýst svo í 1. gr. laganna:
a. Að sunnan: Frá hæstu brún Arnarfells í beina stefnu á Kárastaði, yfir Þingvallavatn og upp á vestara bakka Almannagjár.
b. Að vestan: Hærri barmur Almannagjár að Ármannsfelli.
c. Að norðan: Frá Ármannsfelli þvert austur yfir hraunið að Hlíðargjá.
d. Að austan: Eystri bakki Hlíðargjár og Hrafnagjár ræður takmörkunum suður á hæstu brún Arnarfells.
Hins vegar segir að ekkert jarðrask, húsabyggingar, vegi, rafleiðslur eða önnur mannvirki megi gera í landi jarðanna Kárastaða, Brúsastaða, Svartagils og Gjábakka nema með leyfi Þingvallanefndar. Ekki er í lögunum fjallað um annað land jarðarinnar Þingvalla, þar með talið land það sem liggur ofan við landamerki áðurnefndra jarða og hið friðhelga land í áttina að Skjaldbreið.
Þingvallanefnd hefur talið rétt að stækka hið friðhelga land á Þingvöllum auk þess sem inn í þjóðgarðinn er tekið sem sérstakt verndarsvæði vegna vatnsverndar land norðan og austan hins friðhelga lands og Þingvallavatn og bakkar þess utan hins friðhelga lands.
Við þá breytingu á mörkum hins friðhelga lands sem lögð er til í frumvarpinu fellur allt land jarðanna Kárastaða, Brúsastaða, Svartagils og Gjábakka innan hins friðhelga lands, en eins og áður sagði er í gildandi lögum mælt fyrir um ákveðnar takmarkanir á framkvæmdum á landi þessara jarða. Þá er í frumvarpinu lagt til að land jarðarinnar Arnarfells, sem er eign ríkisins, verði hluti af hinu friðhelga svæði.
Þar sem land sem nú er nýtt til búskapar á jörðunum Kárastöðum og Brúsastöðum fellur innan marka hins friðhelga lands samkvæmt frumvarpinu, og aðstæður kunna að vera með þeim hætti að ekki sé þörf á eða unnt vegna kostnaðar við girðingar að láta þær ströngu reglur sem gilda innan hins friðhelga lands taka strax í byrjun til alls lands jarðanna Kára
Eins og áður sagði tekur sú friðun sem hinu svonefnda verndarsvæði er búin í frum
Verndarsvæðið er afmarkað þannig að norðan Botnssúlna að vestan og Brúarárskarða að austan ráða sýslu- og hreppamörk, þ.e. annars vegar sýslumörk Árnessýslu og Borgarfjarðar
Verndarsvæðið er síðan í landi jarðarinnar Laugarvatns látið ná lengra til austurs en mörk vatnasviðs Þingvallavatns segja til um. Skýringin á þessu er sú að jörðin Laugarvatn var á sínum tíma keypt undir héraðsskóla sem reistur var á Laugarvatni. Jörðin varð þannig sam
Verndarsvæðið er látið ná yfir Þórisjökul og norður fyrir hann og að Geitlandi, en nokkur óvissa kann að vera um hvar suðurmörk þess liggja þar sem þau mörk ráðast af Geitá, sbr. landamerkjabréf Geitlands frá 21. október 1921, og álitamál kann að vera við hvað eigi að miða upptök árinnar. Með því að láta verndarsvæðið ná að Geitlandi og þar með út fyrir vatnasvið Þingvallavatns gefst betra tækifæri til að tengja saman þjóðgarðinn og friðland í Geitlandi.
Innan verndarsvæðisins, eins og það er afmarkað í frumvarpinu, falla lönd jarðanna Mjóa
Í 3. mgr. greinarinnar er með sama hætti og í 4. gr. laga nr. 59/1928 tekið fram að hið friðhelga land skuli vera eign íslensku þjóðarinnar og að óheimilt sé að selja það eða veð
Um 2. gr.
1. og 2. mgr. eru efnislega samhljóða 5. gr. laga nr. 59/1928, en bætt er við 2. mgr. ákvæðum um að nefndin kjósi formann úr sínum hópi og skipti að öðru leyti sjálf með sér verkum. Miðað er við að ný nefnd taki jafnan til starfa þegar eftir að hún hefur verið kjörin á Alþingi.
Þegar stofnað var til friðunar Þingvalla með lögum nr. 59/1928 var valin sú leið að fela nefnd þriggja þingmanna að fara með fyrir hönd Alþingis, eins og segir í 5. gr. laganna, yfir
Þó að Þingvallanefnd sé kjörin af Alþingi og starfi því sem slík á ábyrgð þess sem sjálf
Í tíð gildandi laga um friðun Þingvalla hefur verkefni Þingvallanefndar og starfsmanna hennar einkum verið umsýsla með eignir ríkisins á Þingvöllum og nálægum jörðum og fram
Í frumvarpinu er lagt til að friðun sem lögin um friðun Þingvalla mæla fyrir um taki til stærra landsvæðis, m.a. lands sem er í einkaeign, og þar með er mjög líklegt að ákvarðanir nefndarinnar taki hér eftir til fleiri aðila en nú. Á þetta t.d. við um ákvarðanir sem nefndin kann að taka um mannvirkjagerð á svæðinu. Þingvallanefnd er þannig falið að fara með stað
Þeirri reglu er nú almennt fylgt við skipan stjórnsýslunnar að aðilar máls geti kært ákvörðun lægra setts stjórnvalds til æðra setts stjórnvalds sé því á annað borð til að dreifa. Í framangreindum dæmum um ákvarðanir sveitarstjórnar væri almennt unnt að skjóta þeim ákvörðunum til hlutaðeigandi ráðuneytis og ákvörðunum stjórnvalda á landsvísu til ráðu
Vissulega mætti fara þá leið að mæla fyrir um að t.d. forseti Alþingis eða forsætisnefnd teldist í þessu tilviki æðra stjórnvald en það mælir gegn slíkri skipan að Alþingi væri þá farið að kveða upp stjórnsýsluúrskurði um málefni sem tengjast viðfangsefnum tiltekinna stjórnvalda og forseti Alþingis eða forsætisnefnd væri þá að túlka t.d. lög sett af Alþingi og fjalla um málefni sem á sama tíma kynnu að vera til umfjöllunar á vettvangi Alþingis. Slík skipan mála væri á skjön við þá þrískiptingu valdsins í framkvæmdarvald, löggjafarvald og dómsvald sem stjórnskipan Íslands byggist á. Rétt er líka að vekja athygli á því að gildissvið stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, hefur verið túlkað svo að það taki ekki til starfsemi Alþingis og stofnana þess.
Önnur leið væri að stofna til sérstakrar kærunefndar, úrskurðarnefndar, eða fella ákvarð
Samkvæmt framansögðu eru viðfangsefni Þingvallanefndar í eðli sínu hluti af fram
Um 3. gr.
Um 4. gr.
Eins og lýst er í fyrsta kafla í fylgiskjali II er Þingvallavatn sérstakt m.a. fyrir þær sakir að það er talið eina þekkta vatnið í heiminum þar sem finnast fjögur afbrigði af bleikju. Urr
Vegna þeirrar sérstöku mengunar- og sjúkdómahættu sem stafar af fiskirækt og fiskeldi er lagt til að bannað verði að stunda slíka starfsemi í eða við Þingvallavatn. Með orðunum „við Þingvallavatn“ er átt við ef slík starfsemi tæki vatn, hefði frárennsli eða hefði önnur líffræðileg tengsl við Þingvallavatn.
Í 3. mgr. 2. gr. laga nr. 59/1928 er mælt fyrir um að Þingvallanefnd ráði veiði í Þing
Um 5. gr.
Það land sem fellur undir verndarsvæðið er nú að stærstum hluta til nýtt sem upprekstrar
Verndarsvæðið er, eins og skipan staðarmarka sveitarfélaga er nú háttað, innan þriggja sveitarfélaga, þ.e. Þingvallahrepps, Grímsneshrepps og Laugardalshrepps, auk þess sem suðurbakkar Þingvallavatns eru innan Grafningshrepps. Norðan Þórisjökuls kann einnig að vera um að ræða landsvæði sem tilheyra Hálshreppi í Borgarfirði. Nauðsynlegt er að Þing
Í reglugerð verði kveðið nánar á um hvernig samráði við sveitarstjórnir, heimamenn, landeigendur og sumarbústaðaeigendur verði háttað.
Náttúruvernd ríkisins er með lögum um náttúruvernd, nr. 93/1996, fengið það hlutverk að sinna af hálfu ríkisins margvíslegum verkefnum og umsjón með náttúruverndarsvæðum í landinu. Þingvellir hafa sérstöðu vegna sögu sinnar og Alþingi ákvað á sínum tíma að fela sérstakri þingkjörinni nefnd umsjón með svæðinu. Þessari skipan mála er viðhaldið í frum
Um 6. gr.
Rétt þykir að taka fram með ótvíræðum hætti að Þingvallanefnd er heimilt að binda samþykki á framkvæmdum innan þjóðgarðsins þeim skilyrðum sem hún telur nauðsynleg vegna friðunarinnar, en þarna gæti t.d. verið um að ræða ákveðinn frágang mannvirkja til að koma í veg fyrir að mengandi efni berist frá mannvirkinu.
Um 7. gr.
Í 3. mgr. er mælt fyrir um almenna bótareglu ef aðili verður fyrir fjártjóni vegna friðunar samkvæmt lögunum. Í samræmi við almennar reglur er talið að skerðingar á eignarréttindum umfram hinar svonefndu almennu takmarkanir á eignarráðum fasteignareiganda leiði til bótaskyldu og við beitingu þeirrar bótareglu sem hér er gerð tillaga um reynir á þessi sömu skil. Um bótaskyldu á því ekki að vera að ræða nema farið sé fram yfir hinar almennu tak
Um 8. gr.
Nauðsynlegt getur verið að setja tímabundnar reglur um tiltekin atriði sem lúta að umferð innan þjóðgarðsins og meðferð hans að öðru leyti. Er lagt til að Þingvallanefnd hafi heimild til að setja slíkar reglur og hún geti þá sjálf staðið að birtingu þeirra og það þurfi ekki að gera á sama hátt og reglugerð en vitanlega þarf jafnan að sjá til þess að slíkar tilkynningar séu birtar á skýran máta þannig að almenningur og þeir sem leið eiga um þjóðgarðinn geti haft vitneskju um þær. Við undirbúning slíkra reglna getur nefndin að sjálfsögðu haft samráð við þar til bæra aðila, svo sem Hollustuvernd ríkisins.
Um 9. gr.
Eðlilegt er að framkvæmdastjóri beri starfsheitið þjóðgarðsvörður.
Um skipan Þingvallaprests er fjallað í 7. gr. laga um skipan prestakalla og prófastsdæma o.fl. eins og henni var breytt með lögum nr. 150/1996, um breytingar á sérákvæðum í nokkrum lögum er varða réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, sbr. 2. gr. Þingvallanefnd hefur samið við sóknarprest um að hann gegni jafnframt starfi staðarhaldara og raskar frumvarpið ekki þeirri skipan.
Um 10. og 11. gr.
Um ákvæði til bráðabirgða.
Fylgiskjal I.
Þjóðgarðurinn á Þingvöllum.
(Yfirlitsmynd – Friðun Þingvallasvæðisins.)
Fylgiskjal II.
Dr. Pétur M. Jónasson:
Um Þingvelli, Þingvallavatn og vatnasvið þess.
Gildi Þingvalla fyrir þjóðina.
Þingvellir eru friðlýstur helgistaður allra Íslendinga. Á Þingvöllum var stofnað árið 930 elsta löggjafarþing á Vesturlöndum og síðan þá hafa Þingvellir verið samofnir sögu þjóðarinnar. Þingvellir eru jafnframt frá náttúrufræðilegu sjónarmiði meðal merkustu staða landsins. Af brún Almannagjár má sjá flestar þær gerðir eldstöðva sem finnast hér á landi, einnig jarðhitasvæðið á Nesjavöllum, og sé nánar að gáð ýmsar menjar um áhrif ísaldar
Mið-Atlantshafshryggurinn liggur um Þingvallasvæðið og Þingvallasigdældin er líkust því sem menn finna á neðansjávarhryggjum. Þar geta menn því gengið á tindi Atlantshafs
Þingvallavatn er ein af gersemum Íslands, glitrandi af fegurð. Heiðblátt, djúpt, kalt og tært vatnið kemur alla leið úr Langjökli en við barm þess getur að líta eitt gjöfulasta hvera
Fáar þjóðir, ef nokkur, þekkja upphaf sögu sinnar betur en Íslendingar. Fáar þjóðir eiga einstæðari eða fegurri ramma um sögu sína þar sem sköpun Íslands er að verki á Þingvöllum.
Vatnasvið Þingvallavatns og Brúarársvæði hið efra búa yfir miklu meiri þjóðarauðlind en flesta hefur órað fyrir. Fyrsta stóra átak þjóðarinnar í orkumálum var að reisa rafstöðvar við Sog. Eitt stærsta háhitasvæði Íslands er Hengilssvæðið sem liggur á barmi Þingvalla
Vatnasvið Þingvallavatns — Undraheimur í mótun.
Þingvallasvæðið er eitt af furðulegustu og sérkennilegustu vatnasvæðum heims. Á hátindi Atlantshafshryggjarins, þar sem meginlönd Evrópu og Ameríku klofna sundur, myndast sig
Þingvallasvæðið er hluti af gosbelti Atlantshafshryggjar, en hann nær norðan úr Íshafi suður fyrir Afríku þar sem hann beygir í austur. Eina eyjan, sem stendur á hátindi hans er Ísland. Sú grein hans sem Þingvallasvæðið er hluti af nær frá Reykjanesi í Langjökul og er 130 km á lengd. Vatnasvið Þingvallavatns er um 75 km að lengd, allt að 25 km að breidd en mjókkar nokkuð til endanna. Flatarmálið er um 1.000 km 2. Þingvallavatn fyllir syðsta hluta sigdældarinnar og yfirborð þess er 100 m yfir sjávarmáli. Vatnið sjálft er 84 km 2 að flatarmáli og því 1/ 12 af vatnasviðinu. Hæstu fjöll í sigdældinni eru Þóris- og Geitlandsjökull (1.350 og 1.400 m.y.s) en lægst liggur Sandeyjardjúp 14 m fyrir neðan sjávarmál. Hæðar
Elstur er vestur- og austurjaðar sigdældarinnar, þ.e. berglögin sem ganga undir Súlur, Búrfell og Kvígindisfell og dyngjur Mosfells- og Lyngdalsheiðar (1 milljón ára).
Frægasta náttúrufyrirbæri Þingvalla er sigdældin sem sýnir 40 m sig í Almannagjá og Hrafnagjá og 300 m í Hestvík. Enn meira er sigið í Súlnabergi eða 400 m en það er á ytri mörkum dældarinnar eins og Drift í Lyngdalsheiði. Þingvallavatn, sem er um 10 þús. ára gamalt, tengir saman hinar ólíku jarðmyndanir og gerir úr svæðinu tignarlega heild. Sig
Þingvallasigdældin er afleiðing samfelldrar gliðnunar jarðskorpunnar um sprungubeltið. Landið sígur innan hennar en móberg og ný hraun hlaðast í hana og jafna upp sigið að nokkru. Áætlað er að við Almannagjá hafi sigið á sl. 10.000 árum numið samtals um 40 m og að gliðnunin hafi verið um 70 m á sama tímabili milli Almannagjár og Heiðargjár. Það þýðir að sigið er um 4 mm á ári en gliðnunin tæplega 7 mm. Sigið verður í lotum sem hraðsig eins og í sambandi við Suðurlandsskjálftana 1789. Þá seig landið í hliðum dældar
Nýtt hraðsig gerðist á tímabilinu 1973–1977 þegar Almannagjárgeirinn seig um 9 sm. Tún Þingvallakirkju, sem áður var samfelld heild, er nú orðið að hólmum næst vatninu.
Skjaldbreiður er sígilt dæmi um eldfjall af dyngjugerð. Hin stærstu þeirra, eins og Skjaldbreiður og Trölladyngja, eru meðal mestu hraunmyndana sem verða til í einu gosi, um 17 km 3 að rúmmáli eða sexfalt rúmmál Þingvallavatns og yfir 200 km 2 að flatarmáli.
Yngri gosmyndanir eru Eldborgir í Þjófahrauni sem mynduðu mikil hraun sem runnu á milli Tindaskaga og Hrafnabjarga yfir Skjalbreiðarhraun að Mjóafelli. Suður af Hrafna
Sogið gróf hins vegar farveg í gegnum hraunið við Sogshorn og vatnið lækkaði í núver
Myndun Þingvallavatns.
Við ísaldarlokin fyrir um 12.000 árum lá jökultunga fram Þingvallalægðina niður á móts við suðurenda Úlfljótsvatns. Fyrsti vísirinn að Þingvallavatni var jökullón sem stóð uppi milli jökuls og hlíða í um 165 m hæð yfir sjó eða 65 m ofan við núverandi yfirborð vatnsins. Þá mynduðust hinir efstu hjallar í Grafningi og jökulgarðar sem þeim tengjast.
Við suðausturhorn Þingvallavatns má sjá þrjú þrep malarhjalla til marks um hærri stöðu vatnsins í ísaldarlok. Hið efsta þeirra er í um 65 m hæð yfir núverandi vatnsborði, miðþrepið um 35 m ofar, og neðsta þrepið 10 m ofar. Tvo efri hjallana má tengja ísaldarlokum fyrir um 11–12 þús. árum með jökulruðningi sem sýnir að Þingvallalægðin var að mestu fyllt jökli en jökullón voru við suðurenda hans. Hjallinn í 110 m hæð myndaðist hins vegar allt í kringum vatnið og áður en Sogið gróf farveg sinn gegnum hraunhaftið áðurnefnda. Öldu
Þegar ísöld tók að slota fyrir 11.000 árum var Skjaldbreiður enn ekki til og auravötn frá hinum hopandi jökli í norðaustri runnu í Þingvallalægðina. Þegar Skjaldbreiður svo myndaðist fyrir um 10.000 árum tók fyrir streymi jökulvatna niður í Þingvallalægðina og vatnið varð tært. Safnsvæði Þingvallavatns hefur síðan verið Þingvallalægðin sjálf. Skjald
Sandey er yngsta gosmyndun svæðisins, um 2.000 ára gömul. Hún liggur á sprungu sem líkast til er hin sama og myndaði Nesjahraun norðaustan í Hengli. Öskulag frá Sandey hefur fundist í jarðvegi austan við vatnið allt austur fyrir Lyngdalsheiði. Sandeyjargosið var síðasta eldvirknin á þessum slóðum.
Í Sturlungu er greint frá því að fornmenn hafi breytt farvegi Öxarár og veitt henni niður í Almannagjá. Engin ástæða er til að efa það en áin hefur á 10.000 ára ferli sínum myndað marga farvegi milli Almannagjár og Skálabrekku. Vellirnir svokölluðu eru einnig myndaðir af Öxará sem þá hefur runnið í farvegi nokkru norðan við núverandi farveg.
Lífríki Þingvallavatns og tengsl þess við umhverfið.
Þingvallavatn og vatnasvið þess eru efalítið ein dýrmætasta gersemi íslenskrar náttúru. Flestir halda að Þingvallavatn sé mjög ófrjótt, eins og eyðimörk, vegna þess hve djúpt það er og kalt og umlukt lítt grónum hraunum. En því fer fjarri að svo sé. Umhverfið og vistkerfi vatnsins vinna vel saman en á mjög sérstæðan hátt. Úrkoma er mikil á svæðinu og 90% af aðrennsli Þingvallavatns rennur langar leiðir neðanjarðar eftir sprungum að vatninu að norðanverðu en vatnsmesta bergvatnsá landsins rennur úr því, að mestu leyti um jarðgöng niður í Steingrímsvirkjun. Það vatn, sem rennur í vatnið norðan úr Langjökli, er um 10 ár á leiðinni og rigningin, sem fellur á hraunin ofan vatnsins, skilar sér 2–4 mánuðum síðar í Þingvallavatn. Uppleyst efni verða því meiri í þessu vatni en ætla skyldi og það eykur alla möguleika til gróðurs. „Frjó eru vötn, sem renna undan hraunum“, segir fornt orðtak.
Grunnvatnsrannsóknir sýna enn fremur að hið heita vatn Hengilsins er af sama uppruna. Það virðist fara mjög djúpt undir sprungukerfum vatnsbotnsins, en þau hafa líka verið könnuð.
Gróður er mikill í vatninu og er 1/ 3 hluti botnsins þakinn gróðri. Enda þótt vatnið sé kalt er magn þörunga mikið. Lággróður er nokkuð mikill út á 10 m dýpi en kransþörungar (hágróður) verða mjög háir á 10–30 m dýpi og mynda stór gróðurbelti í vatninu sem hafa mikla þýðingu fyrir allt dýralíf, ekki síst fiskinn. Alls eru fundnar um 150 tegundir jurta á botni og sýnir það nokkuð fjölbreytni gróðursins. Um 50 tegundir dýra beita sér á þennan gróður, allt frá fjöruborði og út á mikið dýpi. Fæstum mun ljóst að 120 þús. dýr lifa á hverjum fermetra í fjöruborðinu en á 114 m dýpi lifa enn 5–10 þús. Dýr þessi mynda fæðu hinnar alþekktu og ljúffengu bleikju sem veiðist í Þingvallavatni. Mikilvæg fæða bleikjunnar er vatnabobbinn, en hann er þýðingarmikill hlekkur í fæðukeðju botnsins.
Lífrannsóknir sýna að tengslin milli umhverfis vatnsins og lífríkis þess eru mjög mikilvæg fyrir jurtir og dýr þar eð fjölbreyttar botnmyndanir skapa fjölda búsvæða. Hraun af mismunandi aldri og gerð skapa óvenjumikla fjölbreytni í búsvæðum vatnsins ásamt gliðnun jarðskorpunnar sem skapar fylgsni fyrir fiska á milli steina og í gjám og gjótum. Einkum má nefna sérkennilegar hraunmyndanir eins og við Vellankötlu og aðrar líkar myndanir austan vatnsins og það lífríki sem tengist þeim. Þar má sérstaklega taka fram hin sérkennilegu tengsl botnafbrigða bleikjunnar við kaldavermsl vatnsins, en þau hrygna um hásumarið. Það er andstætt hrygningu silunga að hausti sem venja er til við hærra hitastig.
Hin nánu tengsl á milli vistfræði vatnsins og jarðfræði umhverfisins skapa vatninu algjöra sérstöðu meðal vatna heimsins. Fara þarf alla leið til Austur-Afríku til að finna hliðstæð vötn sem myndast í sprungum, en það eru hin frægu vötn, Tanganyika, Nyasa og Eþíópíuvötnin og í framhaldi þeirra, Dauðahafið og hið fræga Genesaretvatn.
Við Þingvallavatn mætast austur og vestur í dýraríkinu. Himbrimi, straumönd, húsönd, bitmý og lítil krabbafló eru vestrænar tegundir allt vestan úr Klettafjöllum með austurmörk á Íslandi. Hins vegar eru flestar aðrar tegundir Evróputegundir með vesturmörk hér eða á Grænlandi.
Hvers vegna er Þingvallavatn svo blátt og tært?
Í vatnsbolnum lifir jurtasvifið um mánaðartíma á vorin áður en það, fullnýtt, hnígur til botns og verður að seti, öðru nafni kísilgúr, á botni. Afleiðingin er að vatnið verður tært yfir sumarmánuðina. Í setinu hefur tekist að lesa helstu öskulög sem fallið hafa á þennan hluta landsins frá landnámstíð. Við getum nefnt landnámslagið frá 871, sem kom úr Torfajökli og Vatnaöldum, Kötlugosin árin 1000, 1500, 1721 og 1918. Enn fremur Heklugosin 1341 og 1693. Ástæðan fyrir því að svifið lifir svo stutt er sú að það deyr af níturþurrð í vatns
Fiskurinn og vistkerfið. — Fiskurinn og Sogið.
Í Þingvallavatni eru þrjár tegundir fiska: bleikja, urriði og hornsíli.
Í líffræðilegu tilliti hefur vatnið alþjóðlegt gildi þar eð Þingvallavatn er eina þekkta vatnið í heimi þar sem finnast fjögur afbrigði af bleikju (Salvelinus alpinus). Bleikju
Botnafbrigðin lifa á botndýrum strandgrunnsins og skiptast í dverg- og kuðungableikju. Dvergbleikjan verður aðeins 13 cm á lengd og kynþroska 2–4 ára. Kuðungableikjan verður stór og mjög fagur fiskur 55–60 cm á lengd en kynþroska verður hún fyrst 8 ára gömul. Bæði afbrigðin eru undirmynnt og því er auðvelt fyrir þau að taka fæðu af botninum. Dvergbleikjan lifir góðu lífi í klettasprungum og gjótum á botni. Hér er fæða ríkuleg og hér er hún örugg í fylgsni sínu gegn ránfiskum. Dvergbleikjan má ekki verða of stór til að geta nýtt fylgsni sín og hún er fullkomlega aðlöguð mjög sérstæðu umhverfi. Bæði afbrigðin lifa á sömu fæðu, aðallega á sniglum, sem lifa í breiðum á klettum og grjóti því að þar grær fæða þeirra, þörungarnir, en einnig á rykmýslirfum.
Auk bleikjunnar þreifst til langs tíma víðfrægur urriði (Salmo trutta) í Þingvallavatni. Stærsti og frægasti stofninn tengdist Efra-Sogi þar sem hið tilkomumikla afrennsli Þingvallavatns lá áður fyrr niður í Úlfljótsvatn. Marga aðra stofna urriða var að finna víðar í vatninu, bæði við uppspretturnar sem streymdu um gjár og sprungur í vatnið, en einnig við læki og ár sem falla í vatnið. Stórurriðinn var aðalfiskæta Þingvallavatns og beitti hann sér aðallega á murtuna. Dýralífið í Efra-Sogi var einstakt því að það skapaði fullkomna nýtingu á því lífræna efni sem barst með straumnum ofan úr Þingvallavatni. Urriðaseiði og smáurriði höfðu aðsetur milli steina í sjálfu Soginu og í iðunni ofan Sogs þar sem þau veiddu lífrænt „rek“ úr vatninu með því að liggja kyrr og grípa eða sía átu úr straumvatninu án þess að nota orku. Sú sía, sem tálknin mynda, síaði stærstu fæðuagnirnar frá og hafa það aðallega verið krabbadýrin úr svifinu ásamt bitmýslirfum sem voru aðalfæðan.
Bitmýslirfur nærast á þann hátt að spenna út tvo háfa á hausnum þar sem möskvastærðin er 1/ 1000 úr millimetra. Bitmýið veiddi því allar minnstu fæðuagnirnar allt niður í bakteríustærð en urriðinn veiddi stóru agnirnar, eins og krabbadýr, í síur sínar á tálknunum sem eru um 1 mm eða þúsund sinnum grófari en hjá bitmýi.
Urriðinn í Efra-Sogi náði fáheyrðri stærð og veiðibækur staðfesta að urriðar milli 20 og 30 pund hafi verið tíðir í veiðinni. Í bókinni Urriðadans eftir Össur Skarphéðinsson er sýnt fram á það með sterkum rökum að hvergi í heiminum hafi verið stórvaxnari urriði en í Þingvallavatni, og einnig, að ekkert vatn hafi státað af jafn góðri urriðaveiði og fékkst á haustin við Efra-Sog. Skýringar vísindamanna á hinni miklu urriðaveiði eru einkum þær að í og við Efra-Sog hafi verið hin ákjósanlegustu skilyrði fyrir hrygningu og uppvöxt á öllum stærðum urriðaseiða og er sérstaklega vísað til botngerðarinnar með breytilegum grófleika malar, mikils og stríðs straums, sem þó var mismunandi vegna fjölbreytileika í stærð botngrjótsins, og síðast en ekki síst gífurlegrar mergðar af bitmýi (Simulium vittatum) sem urriðinn er þekktur fyrir að sækja í. Straumvatn er forsenda fyrir þroska bæði urriðahrogna og bitmýs.
Árið 1959 var hið náttúrulega útfall Þingvallavatns milli Kaldárhöfða og Dráttarhlíðar þvergirt með miðlunarstíflu og virkjunin í Steingrímsstöð tekin í notkun. Með þessum aðgerðum þurrkaðist árfarvegurinn í Efra-Soginu nánast alveg upp, bítmýið hvarf og urriðinn var sviptur helstu hrygningarstöðvum sínum. Breytingar á vatnsborðinu í kjölfar virkjunarinnar höfðu líka afgerandi áhrif á viðgang annarra urriðastofna í vatninu sem hafa ekki borið barr sitt síðan.
Þjóðhátíðardaginn 1959 urðu enn kaflaskil: Þann dag brast varnargarður fyrir framan inntaksgöngin í Steingrímsstöð og vatnsflaumur með tíföldu magni Sogsins æddi niður í gegnum göngin og út í Úlfljótsvatn. Við þetta rask hurfu líklega síðustu leifar af riðastöðvum urriðans við útfallið sem hefðu getað haldið uppi einhverjum hluta urriðastofnsins við mynni Efra-Sogsins.
Það leikur enginn vafi á því að með virkjun Steingrímsstöðvar og stíflun Efra-Sogs eyðilagðist mikilfenglegt og merkilegt vistkerfi í og við hið náttúrulega útfall milli Þing
Hreyfingar á vatnsborði og lífríkið.
Strendur vatnsins eru óvenju fjölskrúðugar, myndaðar af hraunstraumum af ólíkum uppruna útliti og aldri frá 2000 til 150.000 ára gömlum. Útbreiðsla þeirra í vatninu er þekkt frá dýptarkortum.
Hinar mörgu gerðir af strandlengjum skapa fjölda búsvæða fyrir dýr og jurtir. Þær eru undirstaða að auðugu botndýralífi og mikilli veiði.
Þegar stöðuvötn eru virkjuð breytast eðlishættir þeirra og lífríki. Leyfðar vatnsborðs
Meðan vatnsborð var hreyft ört, oft 10 cm á dag svo að dögum skipti, olli það myndun bárugarða sem mynduðust í mismunandi hæð og jurta- og dýralíf gjöreyðilagðist við örar hreyfingar. Afleiðingin var að silungsveiði á kuðungableikju hrapaði mjög. Samvinna líf
Orkulindir vatnasviðsins.
Auk hinnar miklu náttúrufegurðar er Þingvallasvæðið ein mesta auðlind íslensku þjóðarinnar. Hér voru byggð með fyrstu og öruggustu vatnsorkuverum landsins, Ljósafoss-, Írafoss- og Steingrímsstöð, sem gefa af sér 89 MW.
Hengilssvæðið, sem er meðal stærstu háhitasvæða á landinu, mun tryggja hita um langan aldur fyrir Reykjavíkursvæðið. Stærð Nesjavallavirkjunar er 100 MW en hana má auka í 400 MW. Auk þess er þar orka fyrir 80 MW rafmagnsvirkjun. Sýnt hefur verið fram á að vatn Nesjavallavirkjunar kemur alla leið úr Langjökli.
Vatnasvið Þingvallavatns, sem er um 1.000 km 2 að stærð, geymir stærstu neysluvatnslind í byggð á Íslandi. Það gefur af sér 100 m 3 á sek. í Sogið við útfall úr Þingvallavatni, en 110 m 3 á sek. við ármót Hvítár.
Vatnasvið Brúarár ofan við Brúarfoss myndar ásamt Þingvallasvæðinu eina heild sunnan Langjökuls. Það er aðeins 225 km 2 að stærð utan jökuls en gefur af sér mikið vatnsmagn eða 40 m 3 á sek. Vatnasvið Brúarár nær neðanjarðar langt norður undir Langjökul og er því í raun miklu stærra.
Samanlagt gefa þessi tvö vatnasvið því 140 m 3 á sek. Hlutur þessara tveggja svæða er 30% af öllu lindarvatni sem rennur í byggð á Íslandi en það nemur um 400 m 3 á sek., þar af a.m.k. 120 m 3/sek. sem hreint lindarvatn.
Vatnsforði á höfuðborgarsvæðinu er 10–20 m 3 á sek. en aðeins hluti hans verður nýttur áður en hann rennur til sjávar.
Hið frábæra vatn Þingvalla- og Brúarárvatnasviðsins tryggir því neyslu- og nytjavatn fyrir Reykjavík og Reykjanesskagann fram á næstu öld eða aldir.
Á Reykjanessvæðinu frá Selfossi að austan og að Kjalarnesi að vestan búa 67% þjóðarinnar eða 175.000 manns (Hagstofa Íslands des. 1992). Enn fremur er rétt að minna á að yfir 90% af fólksfjölgun í landinu verður á þessu svæði.
Vatnsnotkun 50-faldaðist í Reykjavík frá 1903 til 1983 og er nú að meðaltali 600 l á mann á dag. Ef við reiknum með að vatnsnotkun 25-faldist aðeins á næstu öld verður vatnsnámið um 30 m 3 á sek. Reynslan sýnir hins vegar að í verstöðvum þar sem fiskþvottur er mikill getur vatnsnotkun tvöfaldast á skömmum tíma. Það er því lífsnauðsynlegt fyrir fiskiðnað, fiskeldi og allan matvælaiðnað á Reykjanesskaganum að hafa aðgang að nægu neyslu- og nytjavatni í framtíðinni. Hafa ber í huga að ársframleiðsla frystra sjávarafurða frá 1942–1985 hefur aukist úr 20 í rúm 140 þús. tonn. Ef fiskeldi tekur nýtt stökk eykst vatnsnotkun enn að mun.
Gróður og jarðvegur.
Gróður er háður mörgum umhverfisþáttum eins og jarðvegi, hæð yfir sjó og loftslagi, þ.e. hita og úrkomu. Jarðvegur vestan og suðvestan vatnsins er víða um 1 m á þykkt. Þetta er mjög léttur jarðvegur og viðkvæmur fyrir uppblæstri.
Hraun mynda yfir helming af öllu flatarmáli vatnasviðsins. Á þeim er þunnt, órofið jarð
Mýrlendi er örlítið umhverfis Þingvallavatn, í nánd við Ölfusvatn sunnan Sprænutanga og í hlíðunum vestan Þingvallavatns, ásamt Kringlumýri í Lyngdalsheiði.
Frægastir eru Þingvellir fyrir birkiskóginn en hann er einkennandi fyrir svæðið. Allir þekkja nafnið Bláskógar úr Landnámu Ara fróða. Skilyrði fyrir birkiskóg eru ákjósanleg á svæðinu þar eð birki krefst 7,0–7,5°C hita yfir sumarmánuðina maí til ágúst til að þrífast en meðalhitinn var 9,5°C frá 1931–1960 og 8,3°C frá 1961–1980.
Birkiskógurinn nær nú mannhæð eða meira eftir nær 70 ára friðun og einkennist af undur
Í Sturlungu segir að Bláskógaheiði hafi náð upp að Hallbjarnarvörðum. Hallbjarnarvörður liggja í 340 m.y.s og hefur birki líklega náð langleiðina þangað. Hins vegar vex birki nú á dögum aðeins norður með Ármannsfelli að Hofmannaflöt. Mörkin eru því um 13 km sunnar nú og hefur skógurinn þannig dregist verulega saman.
Álitið er að veðurskilyrði hafi farið versnandi frá landnámstíð og fram á 20. öld. Loftslag og sauðfjárbeit hafa valdið miklu foki og rofi á Skjaldbreiðarafrétti, í austurhlíðum Mosfells
Á Skjaldbreiðarafrétti voru 430 km 2 friðaðir fyrir sauðfjárbeit með þjóðarátakinu 1974. Þar hafa fundist 25 tegundir í hinni svörtu eyðimörk en búast má við að enn fleiri af þeim 250 tegundum sem finnast á vatnasviðinu hasli sér þar völl. Svæðið virðist nú í nokkurri framför en sandblástursgeirinn ofan Sandvatns og norðan í Skjaldbreið færist þó enn þá í aukana.
Fuglar og spendýr.
Við vatnið lifa 52 tegundir fugla að staðaldri en aðrar 30 koma af og til. Þingvallavatn er djúpt. Í Þingvallavatni er því ekki fyrir hendi sá gróður og það dýralíf á grunnu vatni sem er undirstaða stórra fuglastofna eins og við Mývatn. Endur geta ekki kafað svo djúpt eftir fæðu. Mófugl er algengur á hinum miklu víðáttum. Allir þekkja tindrandi raddir spóans, lóunnar, hrossagauksins og skógarþrastarins. Þá er enn fremur nokkuð af rjúpu.
Allmiklar breytingar hafa orðið á fuglalífi við Þingvallavatn undanfarin 30 ár. Orsakanna má ekki síst leita í því að á fyrri hluta fimmta áratugarins hóf minkurinn innrás sína á svæðið með válegum afleiðingum fyrir viðgang margra fuglategunda sem áttu búsvæði við vatnið. Einnig hefur gengið nokkuð á varpstaði andartegunda og annarra fugla sem eru nátengdir vatnsbakkanum. Það hefur meðal annars leitt til þess að einkennisfugli vatnsins, himbrim
Þrjú villt spendýr lifa á Þingvallasvæðinu, en það eru fjallarefur, minkur og hagamús. Fjallarefurinn hefur lifað þarna frá alda öðli og sennilega komist til Íslands á ís. Það virðast vera nokkuð miklar sveiflur á fjölda hans á síðari hluta þessarar aldar samkvæmt veiði
Minkur var fluttur til landsins 1931 til loðdýraræktar. Fyrstu minkar sluppu út úr minkabúi í Grímsnesi 1932, aðeins 17 km frá vatninu, og hann er nú algengur á Þingvalla
Hagamús er mjög algeng á Þingvallavatnssvæðinu. Álitið er að hún hafi flust til landsins með heyi landnámsmanna þegar á 9. eða 10. öld.
Hvaðan er líf á Þingvallasvæðinu ættað?
Næstum allur gróður og allt dýralíf er ættað frá Evrópu en þó eru áberandi tegundir í gróður- og dýraríki vestrænar. Nefna má eyrarós, blástjörnu, friggjargras og grávíði. Úr dýraríkinu koma að vestan: Himbrimi, straumönd, húsönd (sjaldgæf) og bitmý Sogsins. Ein aðalkrabbafló vatnsins er einkennistegund í ,,Hinum stóru vötnum“ Norður-Ameríku. Ein
Þróun byggðar og búskapar 1703—1993.
Samkvæmt manntalinu 1703 bjuggu 135 manns á 17 jörðum kringum Þingvallavatn (í Þingvallasveit og hluta af Grafningshreppi). Um aldamótin 1800 var þjóðin mun fámennari en 100 árum áður er fyrsta manntalið fór fram. Ástæðan var sú að 25% þjóðarinnar dóu úr stórubólu 1707–1709 og í móðuharðindunum 1783–1786 fækkaði þjóðinni um 20% vegna horfellis, farsótta og ófrjósemi kvenna af völdum hungurs. Um miðja 18. öldina létust um 10% vegna hungursneyðar. Í Þingvallasveit einni bjuggu 87 manns 1703 og 98 árið 1801. Fjöldinn var 117 árið 1835 og hafði þannig aukist um 20%, en 1870 var talan 145. Harðæri orsakaði flutning úr sveitinni þannig að upp úr aldamótunum 1900 hafði íbúum fækkað í 100 og hélst þessi tala þar til um 1930 en þá fækkaði enn og íbúatalan var 43 árið 1991 (sjá mynd 1).
Fjárbúskapur og veiði hafa alla tíð verið aðalatvinnuvegir við Þingvallavatn. Bæirnir liggja í 100–200 m.y.s. og viðkvæmt beitiland þeirra enn hærra. Fjöldi býla kringum vatnið réðst af því hvernig áraði. Eftir harðindin á 18. öld var fjöldi býla kominn niður í 17 en á köflum höfðu 16 önnur býli verið í byggð þegar vel áraði. Árni Magnússon og Páll Vídalín könnuðu búskap við vatnið á árunum 1706–1711. Þá voru byggðir 17 bæir og fjöldi heimafólks var 135 og hver persóna hafði þá að meðaltali 1 kú og 10 sauðfjár sér til viðurværis.
Búskapur var háður beit allt árið fyrir hross og sauðfé og að nokkru fyrir kýr þar eð tún voru lítil. Búskapur var því háður ýtrustu nýtingu á beitilandi og bústofn var nákvæmlega hinn sami við byrjun og lok 18. aldar. Skepnufjöldi og fjöldi ábúenda fór því eftir beit og túnstærð.
Mynd 2 sýnir fjölda sauðfjár í Þingvallasveit og Grímsnes- og Laugardalshreppi frá 1711–1810 og 1854–1990. Fjöldi sauðfjár í Þingvallasveit hafði tvöfaldast eftir 1830, þrefaldast 1854 fyrir fjárkláðann og fjórfaldast 1981. Þrátt fyrir fækkun fólks í sveitinni og sauðfjársjúkdóma var fjárstofn Þingvallasveitar að meðaltali 2.000 á ári fyrir tímabilið 1854–1990 en tveir alvarlegir sjúkdómar orsaka miklar sveiflur í bústofni á þessum tíma en þeir eru færilúsin (kláði) sem geisaði 1858–1859 og síðan mæðiveikin 1937–1951. Gríms
Beitarálag á Þingvallaafrétti á síðari helmingi þessarar aldar hefur því um fjórfaldast frá 1708. Fyrir Þingvallasveit er talan um 360% og fyrir Grímsnes og Laugardal um 430%.
Hætt er við að þetta álag, sem sífellt hefur aukist undanfarin 150 ár, sé ein af orsökum þess að áfok í Þingvallavatn hefur tvöfaldast á tímabilinu frá 1918 til 1983 miðað við tímabilið frá 1500 til 1721. Ætla má að beitarálag undanfarinna 150 ára á Þingvallaafrétti hafi verið frá 10–15 þús. fjár.
Sauðfjárbúskapur sem aðalatvinnugrein er nú aðeins stundaður á fjórum jörðum í Þingvallahreppi.
Leiga eða sala á sumarbústaðalöndum er nú viðurkennd búgrein í sveit.
Fjöldi sumarbústaða innan vatnasviðsins er um 600. Enn fremur eru um 200 óbyggðar lóðir.
Veiðibúskapur Þingvallavatns 1706–1993.
Saga veiði við Þingvallavatn nær yfir 300 ára tímabil. Á árunum 1706–1711 var veitt frá 13 bæjum aðallega að vetri til með krókum, hoppungi og dorgi gegnum ís. Vaðmálsnet þekktust en voru aðeins notuð á tveimur bæjum þar eð bátar voru ekki til á vatninu. Sr. Jón Þorkelsson hefur lýst breytingum sem urðu á Þingvallavatni við jarðskjálftana og landsigið 1789. Sum net hans lágu á þurru landi en eftir öðrum þeirra þurfti að vaða. Á síðustu öld keyptu bændur báta á vatnið og net urðu algeng. Hampnet voru notuð í Mjóanesi upp úr 1850, og Feddersen (1885) skrifar að sr. Jens Pálsson hafi látið honum í té net við rannsóknir hans 1884. Murtuveiði hófst um leið og hampnet urðu algeng. Veiðin jókst stórum og hafði mikla þýðingu fyrir bændur. Murta þótti ljúffeng og var seld sem ódýr soðning um Suðurland og Borgarfjarðardali. Kuðungableikja (botnbleikja) og sílableikja ásamt urriða voru seld sem lostæti til Reykjavíkur.
Á tímabilinu frá 1896–1902 var veitt frá 17 bæjum (Bjarni Sæmundsson 1897–1904). Árið 1930 var enn veitt frá 17 bæjum en 1990 var talan komin niður í sex. Net úr hörtvinna voru notuð fram til 1920 en síðar úr bómull, nælon og girni. Öll net voru hnýtt á bæjum þar til nælon og girnisnet komu til sögunnar.
Veiðin hófst ávallt með írekstrarveiði á vorin. Þegar hitastig komst í 3°C fór fiskurinn að ganga á grunnið og oft var hlutur urriðans stór í þeirri veiði.
Veiðiskýrslur Þingvallavatns ná yfir tæp 100 ár frá 1896–1987 að undanteknu tímabilinu 1947–1958.
Veiði hefur stöðugt aukist. Framan af var kuðungableikja og sílableikja aðalþáttur veiðinnar, sérstaklega þegar markaðsverð hækkaði í fyrra stríði í Reykjavík. Bleikjan hélt áfram að vera í góðu verði, ekki síst eftir að samgöngur tóku að batna upp úr 1930. Sér
Á mynd 4 er veiðin gefin upp eftir vigt. Þar sést að veiðin hefur 8-faldast á 100 árum, úr um 10 tonnum í um 75–80 tonn á ári. Þessar tölur sýna að Þingvallavatn er frábært veiðivatn samanborið við önnur vötn á sömu breiddargráðu með veiði upp á 10 kg á hektara á ári. Á þessari heildarmynd sést greinilega að sveiflurnar gerast mjög miklar og óreglulegar eftir virkjun Sogsins 1959. Virkjunin virðist því hafa haft grundvallaráhrif á veiðina, sérstaklega murtuveiðina.
Hve mikið magn af fiski er í vatninu?
Tilraunaveiði var framkvæmd 1983 og 1984 og sýndi eftirfarandi:
Murta 642 tonn
Sílableikja 36 tonn
Kuðungableikja 22 tonn
Dvergbleikja 9 tonn
Hornsíli 50 tonn
Alls 759 tonn
Heildarmagn af bleikju var því um 700 tonn vegna þess að hornsíli og dvergbleikja eru ekki veidd. Hornsíli er hins vegar nauðsynlegur hlekkur í fæðukeðju sílableikjunnar. Áber
Fyrir stíflugerð við Sog 1959 var stór og mikill urriðastofn í vatninu. Murta var þýðingarmikil í fæðukeðju urriðans og því má ætla að hann hafi verið um 8% af murtustofni eða 50 tonn.
Á þessari öld hefur veiðin í vatninu margfaldast og hún hefur verið veruleg búbót fyrir margar jarðir en nýting á kuðunga- og sílableikju hefur víða gengið nærri stofni þeirra.
Heimildir:
Árni Magnússon og Páll Vídalín.
Manntal á Íslandi 1703.
Árni Magnússon og Páll Vídalín.
Jarðabók. 2. bd. Árnessýsla (Grafningur 1706 og Þingvallasveit 1711).
Kaupmannahöfn 1918–1921.
Önnur útgáfa, Reykjavík 1981.
Skýrslur um Landshagi á Íslandi, bd. 1–5.
Hið íslenska Bókmenntafélag í Kaupmannahöfn, 1858–1875.
Landshagskýrslur og Hlunninda 1899–1913.
Reykjavík.
Hagskýrslur Íslands og skýrslur um landbúnað á Íslandi 1703–1991.
Reykjavík.
Ecology of oligotrophic, subarctic Thingvallavatn.
Ritstjóri: Pétur M. Jónasson.
Kaupmannahöfn 1992.
Össur Skarphéðinsson.
Urriðadans.
Reykjavík 1996.
Bjarni Sæmundsson.
Um Fiskirannsóknir 1897. — Andvari 1898. 22: 96–172. Reykjavík.
Fiskirannsóknir 1902. — Andvari 1904. 29: 79–119 Reykjavík.
(Mynd 1-4 myndaðar — 2 síður.)
Fylgiskjal III.
Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:
Umsögn um frumvarp til laga um friðun Þingvalla og Þingvallavatns.
Í 3. gr. er ákvæði um Þingvallanefnd sem kosin skal úr röðum alþingismanna. Áætlað er að laun og annar kostnaður tengdur nefndinni geti numið um 500 þús. kr. á ári. Að öðru leyti fer um fjárveitingar til Þingvalla eftir ákvörðun Alþingis hverju sinni, og eru þær fjárveitingar færðar undir forsætisráðuneyti í fjárlögum.
Ekki verður séð fyrir nú hvaða kostnað leiðir sérstaklega af samþykkt þessa frumvarps. Ætla má að rekstrarkostnaður þjóðgarðsins aukist við stækkun hans en óvíst hve mikið. Ekki er búist við auknum kostnaði strax. Vakin er athygli á að jarðirnar Mjóanes, Miðfell og Skálabrekka sem allar eru í einkaeign munu verða innan þess verndarsvæðis sem afmarkað er í frumvarpinu. Önnur svæði í einkaeign, svo sem sumarbústaðir og lóðir þeirra, kunna einnig að verða innan verndarsvæðisins. Með tímanum kann það að koma til að ríkið verði að leysa til sín jarðir eða eignir innan svæðisins þótt ekki sé hægt að segja til nú um kostnað sem af því leiðir.