Ferill 348. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 1234 – 348. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum nr. 117/1993, um almannatryggingar, með síðari breytingum .
(Eftir 2. umr., 22. apríl.)
1. gr.
Á eftir I. kafla laganna kemur nýr kafli, I. kafli A, Tryggðir samkvæmt lögunum, með fjórum nýjum greinum, 9. gr. a – 9. gr. d, er orðast svo:
a. (9. gr. a.)
Sá sem búsettur er hér á landi telst tryggður, sbr. þó 24. gr., að uppfylltum öðrum skilyrðum laganna, nema annað leiði af milliríkjasamningum.
Með búsetu skv. 1. mgr. er átt við lögheimili í skilningi lögheimilislaga.
Tryggingastofnun ríkisins ákvarðar hvort einstaklingur telst tryggður hér á landi samkvæmt lögunum. Um málskot fer skv. 7. gr.
b. (9. gr. b.)
Tryggingastofnun ríkisins er heimilt að ákveða samkvæmt umsókn að einstaklingur, sem tryggður er samkvæmt lögunum, sé áfram tryggður þótt hann uppfylli ekki skilyrði 9. gr. a, enda starfi viðkomandi erlendis fyrir aðila sem hafi aðsetur og starfsemi á Íslandi og tryggingagjald, sbr. lög um tryggingagjald, sé greitt hér á landi af launum hans. Sama gildir um maka hans og börn undir 18 ára aldri sem dveljast með honum.
Umsókn um tryggingu samkvæmt þessari grein skal berast Tryggingastofnun ríkisins eigi síðar en fjórum vikum fyrir brottför af landinu.
c. (9. gr. c.)
Tryggingastofnun ríkisins er heimilt að ákveða samkvæmt umsókn að einstaklingur, sem tryggður er samkvæmt lögunum, sé áfram tryggður, sbr. þó 24. gr., í allt að eitt ár frá brottför af landinu þótt hann uppfylli ekki skilyrði 9. gr. a eða 9. gr. b, enda leiði milliríkjasamningar ekki til annars. Skilyrði þessa er að viðkomandi hafi haft samfellda fasta búsetu hér á landi eigi skemur en fimm ár fyrir brottför og að það sé ekki tilgangur farar að leita læknis
Umsókn um tryggingu samkvæmt þessari grein skal berast Tryggingastofnun ríkisins eigi síðar en fjórum vikum fyrir brottför af landinu.
d. (9. gr. d.)
Ráðherra setur reglugerð um einstök atriði er varða framkvæmd þessa kafla, m.a. um skrán
2. gr.
3. gr.
a. 1. mgr. orðast svo:
Sá sem átt hefur lögheimili í landinu í sex mánuði í skilningi lögheimilislaga og laga um tilkynningar aðsetursskipta, sbr. og ákvæði I. kafla A laga þessara, telst sjúkra
b. 4. mgr. orðast svo:
Ráðherra getur sett reglugerð um fyrirkomulag og framkvæmd sjúkratrygginga, um starfsemi sjúkratryggingadeildar og um undanþágur frá sex mánaða lögheimilisskilyrði og framkvæmd þeirra.
4. gr.
5. gr.
Ákvæði til bráðabirgða.
Tryggingastofnun ríkisins er heimilt að ákveða samkvæmt umsókn að einstaklingur, sem uppfyllti skilyrði 9. gr. b 1. janúar 1994 eða síðar, teljist tryggður hér á landi.
Umsókn um tryggingu samkvæmt heimild í þessu ákvæði skal berast Tryggingastofnun ríkisins eigi síðar en 1. júlí 1999.