Ferill 709. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 1370 – 709. mál.



Fyrirspurn



til félagsmálaráðherra um aðgengi fatlaðra.

Frá Ástu R. Jóhannesdóttur.



     1.      Hver er ábyrgur ef ekki er farið að lögum um aðgengi fatlaðra að opinberum byggingum, sbr. 34. gr. laga um málefni fatlaðra, nr. 59/1992?
     2.      Er kveðið á um einhver viðurlög ef skyldum varðandi aðgengi fatlaðra er ekki sinnt?