Ferill 524. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 1529 – 524. mál.
Frumvarp til laga
um breyting á lögum nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, með síðari breytingum.
(Eftir 2. umr., 4. júní.)
1. gr.
a. Á eftir 1. málsl. 4. mgr. koma tveir nýir málsliðir er orðast svo: Framangreint hlutfall skal þó lækkað um 0,5 á hverju ári sem maður á rétt á vaxtabótum samfellt vegna sama íbúðarhúsnæðis umfram 25 ár. Hafi maður fengið vaxtabætur samfellt vegna sama íbúðarhúsnæðis í 36 ár skal frádráttur á grundvelli tekjuskattsstofns falla niður.
b. Á eftir 5. málsl. 4. mgr., er verður 7. málsl., koma tveir nýir málsliðir er orðast svo: Við ákvörðun vaxtabóta á því ári þegar maður aflar sér íbúðarhúsnæðis, en hefur ekki feng
c. Á eftir 8. mgr. koma fjórar nýjar málsgreinar er orðast svo:
Heimilt er að greiða fyrir fram ársfjórðungslega áætlaðar vaxtabætur til þeirra sem festa kaup á íbúðarhúsnæði til eigin nota á árinu 1999 og síðar. Skulu áætlaðar vaxta
Áætlaðar vaxtabætur skal miða við gjaldfallna og greidda vexti hvers ársfjórðungs af þeim veðlánum sem tekin eru til öflunar íbúðarhúsnæðis, þó ekki meira en fjórðung af hámarki vaxtagjalda, sbr. 3. mgr.
Frádrátt frá vaxtagjöldum hvers ársfjórðungs, sbr. 4. mgr., skal miða við fjórðung af staðgreiðsluskyldum tekjum síðustu 12 mánaða á undan honum að viðbættum þeim tekj
Sá sem rétt kann að eiga til fyrirframgreiðslu vaxtabóta á því ári sem hann aflar sér íbúðarhúsnæðis skal sækja um fyrirframgreiðsluna og leggja fram tilskildar upplýsingar. Lánastofnanir, lífeyrissjóðir og aðrir aðilar sem veita lán til íbúðarkaupa gegn veði í fasteign skulu veita skattyfirvöldum nauðsynlegar upplýsingar til að ákvarða fyrirfram
d. Á eftir orðunum „Innheimtustofnunar sveitarfélaga“ í 10. mgr. kemur: svo og gjaldföllnum afborgunum og vöxtum af lánum Íbúðalánasjóðs.
2. gr.