Frestun umræðu um náttúruvernd

Föstudaginn 19. febrúar 1999, kl. 17:13:45 (3957)

1999-02-19 17:13:45# 123. lþ. 70.96 fundur 276#B frestun umræðu um náttúruvernd# (um fundarstjórn), HG
[prenta uppsett í dálka] 70. fundur, 123. lþ.

[17:13]

Hjörleifur Guttormsson:

Virðulegur forseti. Er hægt að fá uppgefnar ástæður fyrir því að frestað er umræðu um þetta mál hér og nú, mál sem menn hafa væntanlega búið sig undir að taka þátt í umræðum um og vera viðstaddir? Mér sýnist að nokkuð brýnar ástæður þurfi til þess ef fresta á umræðu um málið, en það er eingöngu þetta sem ég vildi óska eftir að fá upplýsingar um.