Aldursforseti (Ragnar Arnalds):
Nú fer fram kosning forseta Alþingis. Samkvæmt 1. mgr. 3. gr. þingskapa eru þeir einir í kjöri sem tilnefndir eru. Ég óska eftir tilnefningu.
Forseta hefur borist tilnefning um 1. þm. Reykn., Ólaf G. Einarsson. Aðrar tilnefningar hafa ekki borist. Ólafur G. Einarsson er því einn í kjöri.
Þar sem aðeins einn er í kjöri er það ætlun forseta að láta kosninguna fara fram með atkvæðagreiðslukerfinu eins og á undangengnum þingum. Ef ekki eru gerðar athugasemdir við þennan hátt á atkvæðagreiðslunni þá hefst atkvæðagreiðslan. Þeir sem kjósa Ólaf G. Einarsson ýti á já-hnappinn en þeir sem vilja skila auðu ýti á hnappinn sem merktur er: Greiðir ekki atkvæði.