Forseti (Ragnar Arnalds):
Forseti vill láta þess getið að í dag fer fram umræða utan dagskrár um kerfisbreytingu í húsnæðismálum og ástandið á leigumarkaði. Málshefjandi verður Ögmundur Jónasson en hæstv. félmrh. verður til andsvara. Umræðan fer fram skv. 1. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund. Gert er ráð fyrir því að umræðan fari fram kl. 15.30 síðdegis.