Ferill 27. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 27 — 27. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra um afnám skerðingar bóta til öryrkja vegna tekna maka.
Frá Steingrími J. Sigfússyni.
1. Hvenær er áætlað að afnám skerðingar bóta til öryrkja vegna tekna maka, sbr. yfirlýsingu ráðherra á ársfundi Tryggingastofnunar ríkisins, komi til framkvæmda?
2. Hvað kosta þessar breytingar og er gert ráð fyrir fjárveitingum í þessu skyni í fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár?