Ferill 87. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 87 — 87. mál.



Fyrirspurn



til viðskiptaráðherra um hlutafélög og einkahlutafélög.

Frá Jóhönnu Sigurðardóttur.



1.      Hve mörg hlutafélög annars vegar og einkahlutafélög hins vegar voru skráð á árunum 1996, 1997 og 1998 (til 1. okt.), sundurliðað eftir árum og starfsgreinum?
2.      Hve mikið fjölgaði hlutafélögum annars vegar og einkahlutafélögum hins vegar á þessum árum sem hlutfall af heildarfjölda þeirra, sundurliðað eftir árum og starfsgreinum?


Skriflegt svar óskast.