Ferill 128. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 128 — 128. mál.
Fyrirspurn
til samgönguráðherra um störf við loftskeytastöðina á Ísafirði.
Frá Svanfríði Jónasdóttur.
1. Hvert voru þau störf færð sem unnin voru í loftskeytastöðinni á Ísafirði þegar stöðin var lögð niður nú í sumar?
2. Var þeim starfsmönnum sem unnu við loftskeytastöðina á Ísafirði boðin áframhaldandi vinna hjá Landssíma Íslands hf.? Ef svo var, við hvað og hvar?
3. Er eitthvað í nýrri tækni sem kallar á að þessi störf séu unnin annars staðar en á Ísafirði?
Prentað upp.