Ferill 131. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 131 — 131. mál.
Fyrirspurn
til forsætisráðherra um nefndir og ráð á vegum ríkisins.
Frá Árna Steinari Jóhannssyni.
1. Hversu margar nefndir og ráð starfa nú á vegum ríkisins?
2. Hversu margir eru í þeim, sundurliðað eftir kjördæmum?
3. Hver er heildarkostnaður ríkisins við nefndir og ráð það sem af er þessu ári?
Skriflegt svar óskast.