Ferill 139. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 139  —  139. mál.



Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um dvalarrými fyrir aldraða.

Frá Svavari Gestssyni.



     1.      Hve mörg dvalarrými fyrir aldraða í „mjög brýnni þörf“ verða tekin í notkun á næsta ári miðað við forsendur fjárlagafrumvarpsins?
     2.      Hvar eru þessi dvalarrými og hve mörg rými eru á hverjum stað?
     3.      Hve margir aldraðir eru í „mjög brýnni þörf“ fyrir hjúkrunarrými í landinu nú? Hvar eru þeir? Hve margir munu samkvæmt spám bætast við á þessu ári?