Ferill 145. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 145 —  145. mál.



Fyrirspurn



til samgönguráðherra um rekstrarkostnað Flugmálastjórnar.

Frá Jóhönnu Sigurðardóttur.



     1.      Hver voru laun, lífeyrisréttindi og önnur starfskjör stjórnenda Flugmálastjórnar, sundurliðað eftir stöðuheitum, fjölda stjórnenda og milli kynja, föstum launum, öðrum greiðsl­um, eins og stjórnargreiðslum, og hvers konar þóknunum og hlunnindum, þ.m.t. bíla­hlunnindum og risnu á árunum 1993–97?
     2.      Hver var ferðakostnaður erlendis árlega á árunum 1993–97, að báðum árum meðtöldum, hve margar ferðir voru farnar hvert ár um sig, hvernig sundurliðast kostnaðurinn milli flugfargjalds, gistikostnaðar og dagpeningagreiðslna? Sérstaklega er óskað sundurliðun­ar á fjölda ferða stjórnenda og tilgreindur árlegur sundurliðaður kostnaður við þær og ferðir maka þeirra, sé um það að ræða
     3.      Hvaða reglur gilda um bifreiðahlunnindi, risnu- og ferðakostnað stjórnenda?
     4.      Hver var árlegur risnukostnaður 1993–97, að báðum árum meðtöldum, sundurliðað eftir:
       a.      fastri risnu greiddri einstökum stjórnendum,
       b.      risnu greiddri samkvæmt reikningi,
       c.      helstu þáttum risnunnar og kostnaði við hvern þeirra, auk helstu tilefna risnunnar?
     5.      Hefur verið farið í laxveiðiferðir á vegum Flugmálastjórnar? Ef svo er, hvernig skiptist árlegur kostnaður við þær sl. fimm ár milli laxveiðileyfa og annarra útgjalda vegna ferð­anna. Hve margar ferðir voru farnar á ári hverju, hvert var farið, hverjir voru þátttak­endur í slíkum ferðum og hver voru tilefni þeirra?
     6.      Hverjir taka ákvarðanir um ferðir stjórnenda erlendis og laxveiðar, sé um þær að ræða?


Skriflegt svar óskast.