Ferill 154. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 154  —  154. mál.




Fyrirspurn



til samgönguráðherra um fræðslu fyrir erlenda ferðamenn.

Frá Kristínu Ástgeirsdóttur.



     1.      Hvaða reglur gilda um fræðslu fyrir erlenda ferðamenn sem koma hingað til lands?
     2.      Hvaða kynningarefni fá erlendir ferðamenn í hendur við komu til landsins og hvert er inntak þess?
     3.      Hvaða áform eru uppi um að bæta fræðslu fyrir erlenda ferðamenn í ljósi nýlegra slysa á ferðamönnum og gáleysislegrar umgengni þeirra við landið?