Ferill 175. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 180  —  175. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra um ferðakostnað aðstandenda ungra fíkniefnaneyt­enda.

Frá Margréti Frímannsdóttur.



     1.      Hvaða reglur gilda um þátttöku almannatryggingakerfisins í ferðakostnaði foreldra eða aðstandenda ungra fíkniefnaneytenda sem eru á meðferðarheimilum fjarri heimabyggð? Ef um hlutdeild almannatrygginga er að ræða í þessum kostnaði, hver er hún, og ef ekki, mun ráðherra þá beita sér fyrir breytingum á viðkomandi reglum?
     2.      Hver er áætlaður heildarferðakostnaður foreldra eða aðstandenda vegna þátttöku þeirra í meðferðarstarfi á heimilum fyrir unga fíkniefnaneytendur?