Ferill 187. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 203  —  187. mál.



Fyrirspurn



til félagsmálaráðherra um niðurstöður nefndar um kynferðislegt ofbeldi gagnvart þroska­heftum.

Frá Ástu R. Jóhannesdóttur.



    Hverjar voru helstu niðurstöður nefndar sem skipuð var í október 1996 og tók saman upplýsingar um kynferðislegt ofbeldi gagnvart þroskaheftum? Hyggst ráðherra gera niður­stöður hennar opinberar og ef svo er, hvenær? Kalla niðurstöður nefndarinnar á aðgerðir af hálfu yfirvalda?