Ferill 192. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 208 — 192. mál.
Fyrirspurn
til menntamálaráðherra um Lánasjóð íslenskra námsmanna.
Frá Jóhönnu Sigurðardóttur.
Er ráðherra reiðubúinn að beita sér fyrir því að húsaleigubætur námsmanna verði ekki reiknaðar með í tekjustofni til skerðingar í útreikningi námslána þannig að jafnræði ríki milli námsmanna sem búa í eigin húsnæði og þeirra sem eru á leigumarkaði?