Ferill 210. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 231  —  210. mál.




Fyrirspurn



til samgönguráðherra um samgöngur á Vestfjörðum.

Frá Lilju Rafneyju Magnúsdóttur.



     1.      Verða jarðgöng undir Hrafnseyrarheiði til tengingar norður- og suðurhluta Vestfjarða í endurskoðaðri vegáætlun?
     2.      Hvaða úrræði sér ráðherra til að bæta samgöngur í heild á Vestfjörðum?