Ferill 133. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 245  —  133. mál.




Svar



menntamálaráðherra við fyrirspurn Sivjar Friðleifsdóttur um framlög til Æskulýðssambands Íslands.

     1.      Hver eru framlög íslenska ríkisins til Æskulýðssambands Íslands í ár?
    Framlög menntamálaráðuneytisins til Æskulýðssambands Íslands það sem af er þessu ári eru 250 þús. kr.

     2.      Hvernig hafa framlögin þróast árin 1990–98 á föstu verðlagi miðað við núvirði?
    Framlög á fjárlögum og af safnliðum menntamálaráðuneytisins til Æskulýðssambands Íslands á tímabilinu 1990–98 og framreiknuð til núvirðis eru sem hér segir:

Verðlag 1998
Ár Kr. Kr.
1990
836.000 1.052.415
1991
1.200.000 1.414.953
1992
1.200.000 1.363.964
1993
800.000 873.462
1994
500.000 537.897
1995
1.100.000 1.163.531
1996
50.000 51.708
1997
105.000 106.644
1998 (pr. 20. okt.)
250.000 250.000
Samtals
6.041.000 6.814.572