Ferill 221. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 248  —  221. mál.



Fyrirspurn



til menntamálaráðherra um fjarnám.

Frá Ísólfi Gylfa Pálmasyni.



     1.      Hvaða skólar á framhalds- og háskólastigi bjóða fjarnám?
     2.      Hvaða kröfur eru gerðar til þeirra sem hyggjast stunda fjarnám á Íslandi?
     3.      Hvaða námsstigi er hægt að ljúka með fjarnámi á Íslandi og hvaða prófgráður veitir það?
     4.      Hverjir sækjast helst eftir fjarnámi og hvernig er skipting nemenda eftir aldri, kyni og búsetu?