Ferill 274. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 312 — 274. mál.
Fyrirspurn
til fjármálaráðherra um verkefni VSÓ-verkfræðistofu.
Frá Ögmundi Jónassyni.
1. Hvaða verkefnum hefur VSÓ-verkfræðistofan sinnt fyrir opinberar stofnanir frá árinu 1991 og fram á þennan dag?
2. Hve miklar greiðslur hefur VSÓ fengið fyrir verk sín í heild og hvernig skiptist sú fjárhæð eftir einstökum verkum og ráðuneytum?
Skriflegt svar óskast.