Ferill 275. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 313  —  275. mál.




Fyrirspurn



til menntamálaráðherra um jöfnun á aðstöðu til náms.

Frá Kristínu Jóh. Björnsdóttur.



     1.      Hvað er gert til að bæta skilyrði þeirra nemenda á framhaldsskólastigi sem sækja nám utan heimabyggðar?
     2.      Hafa verið gerðar kannanir á vegum ráðuneytisins á þörf fyrir heimavistarrými fyrir nemendur á framhaldsskólastigi?