Ferill 287. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 338  —  287. mál.




Fyrirspurn



til landbúnaðarráðherra um lausagöngu búfjár.

Frá Rannveigu Guðmundsdóttur.



     1.      Hverjar eru tillögur nefndar sem skipuð var í sumar í þeim tilgangi að gera tillögur til úrbóta vegna lausagöngu búfjár og ætlað var að ljúka störfum 1. október sl.?
     2.      Hyggst ráðherra leggja fyrir yfirstandandi þing frumvarp til laga um lausagöngu búfjár í landinu?