Ferill 295. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 352  —  295. mál.




Fyrirspurn



til dómsmálaráðherra um þjónustu Neyðarlínunnar hf.

Frá Lúðvík Bergvinssyni.



    Hvaða fjárhæð hefur ríkissjóður lagt fram á hverju ári þau ár sem þjónustusamningur milli Neyðarlínunnar hf. og dómsmálaráðherra um neyðarþjónustu hefur verið í gildi? Hvernig sér ráðherra fyrir sér framhald samstarfs ríkisins og Neyðarlínunnar hf.?