Ferill 330. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 408  —  330. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um starfsmannavanda sjúkrahúsanna á höfuðborgarsvæðinu.

Frá Þórunni H. Sveinbjörnsdóttur.



     1.      Hvernig hyggst ráðherra bregðast við því að 30 starfsmenn vantar í ræstingar á Sjúkrahúsi Reykjavíkur?
     2.      Verður hægt að halda uppi starfsemi eldhúss Landspítala þó að tæplega 10 stöðugildi séu ómönnuð?
     3.      Hyggst ráðherra láta gera úttekt á vanda stóru sjúkrahúsanna sem stafar af gífurlegum mannabreytingum?