Ferill 337. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 428  —  337. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra um fyrirkomulag sjúkraflutninga.

Frá Margréti Frímannsdóttur.



     1.      Hefur verið gengið frá samningum við Rauða kross Íslands um sjúkraflutninga á öllum heilsugæslusvæðum landsins? Ef ekki, um hvaða svæði er að ræða þar sem samið hefur verið við aðra aðila?
     2.      Eru einhver tilvik þar sem þetta verkefni var tekið frá aðilum á viðkomandi heilsugæslusvæði án samkomulags við þá aðila eða heimamenn? Ef svo er, um hvaða svæði er að ræða og hver er ástæða þess að það var gert?