Ferill 353. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 476 — 353. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra um lífeyri sjómanna.
Frá Svavari Gestssyni.
1. Hve margir sjómenn 60–65 ára nutu ellilífeyris árið 1997 samkvæmt sérstökum ákvæðum í lögum um almannatryggingar?
2. Hve margir sjómenn 60–65 ára fengu árið 1997 tekjutryggingu óskerta samkvæmt sama lagaákvæði?
3. Hverju nam heildarkostnaður Tryggingastofnunar ríkisins 1997 vegna lífeyris sjómanna á aldrinum 60–65 ára? Hér er átt við allar lífeyrisgreiðslur og lífeyristengdar greiðslur sjómanna.
Skriflegt svar óskast.