Ferill 381. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 650  —  381. mál.




Fyrirspurn



til landbúnaðarráðherra um stuðning Framleiðnisjóðs við útflutning og markaðssetningu ís­lenskra hrossa.

Frá Gísla S. Einarssyni.



     1.      Hvert er hlutverk Framleiðnisjóðs landbúnaðarins í beinum stuðningi við útflutning og markaðssetningu hrossa erlendis? Hver eru áform sjóðsins þar að lútandi?
     2.      Er áformað að veita stuðning við búháttabreytingar, t.d. að breyta fjósum í hesthús eða breyta sauðfjár- eða kúabúum í hrossaræktarbú?
     3.      Mun Framleiðnisjóður veita stuðning við þá fækkun hrossa um 1.600 sem fyrirhuguð er?


Skriflegt svar óskast.