Ferill 427. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 701  —  427. mál.




Fyrirspurn



til félagsmálaráðherra um fjölda útlendinga með atvinnuleyfi hér á landi.

Frá Svavari Gestssyni.



     1.      Hve margir útlendingar hafa nú, í janúar 1999, atvinnuleyfi hér á landi?
     2.      Hvernig skiptist fjöldi þeirra eftir kjördæmum?
     3.      Hve stór hluti þeirra starfar við sjávarútveg og hvar starfa þeir (10–15 fjölmennustu staðirnir óskast tilgreindir)?
     4.      Hve hátt er hlutfall útlendinga meðal starfsfólks í sjávarútvegi og fiskvinnslu?
     5.      Hvaða ráðstafanir eru gerðar almennt og/eða í hverju tilviki til að veita þeim kennslu í íslensku?