Ferill 437. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 735  —  437. mál.




Fyrirspurn



til forsætisráðherra um framkvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar í jafnréttismálum.

Frá Kristínu Ástgeirsdóttur.



     1.      Er hafin könnun á áhrifum atvinnu- og þjóðfélagsbreytinga á stöðu kvenna á landsbyggðinni, sbr. lið 1.3 í framkvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar um aðgerðir til að ná fram jafnrétti kynjanna? Ef svo er, hvenær er áætlað að niðurstöður liggi fyrir?
     2.      Er hafin könnun á stöðu jafnréttismála í forsætisráðuneytinu og hjá þeim stofnunum sem undir það heyra? Ef svo er, hvað hefur hún leitt í ljós, sbr. lið 1.5 í framkvæmdaáætlun­inni?
     3.      Hvað líður gerð áætlana um jafna stöðu kynjanna innan ráðuneytisins og þeirra stofnana sem undir það heyra, sbr. lið 1.5 í framkvæmdaáætluninni?