Ferill 440. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 738  —  440. mál.




Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um framkvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar í jafnréttismálum.

Frá Kristínu Ástgeirsdóttur.



     1.      Hvað líður fræðsluátaki fjármálaráðuneytisins í jafnréttismálum fyrir yfirmenn stofnana sem undir það heyra, sbr. lið 4.4 í framkvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar um aðgerðir til að ná fram jafnrétti kynjanna?
     2.      Hvað líður endurskoðun á eyðublöðum þeirra stofnana sem heyra undir ráðuneytið, sbr. lið 4.6 í framkvæmdaáætluninni?
     3.      Er hafin könnun á stöðu jafnréttismála innan ráðuneytisins eins og þeim háttar nú, sbr. lið 4.7 í framkvæmdaáætluninni?
     4.      Hvað líður gerð áætlana um að jafna stöðu kynjanna í ráðuneytinu og þeim stofnunum sem undir það heyra, sbr. lið 4.7 í framkvæmdaáætluninni?


Skriflegt svar óskast.