Ferill 446. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 744  —  446. mál.




Fyrirspurn



til samgönguráðherra um framkvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar í jafnréttismálum.

Frá Kristínu Ástgeirsdóttur.



     1.      Hvað líður mati á framlagi kvenna til ferðaþjónustu í landinu og hugmyndum um aðgerðir til að auka það, sbr. lið 10.1 í framkvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar um aðgerðir til að ná fram jafnrétti kynjanna?
     2.      Er hafin könnun stöðu jafnréttismála í ráðuneytinu og þeim stofnunum sem undir það heyra, sbr. lið 10.3 í framkvæmdaáætluninni? Ef svo er, hvað hefur hún leitt í ljós?
     3.      Hvað líður gerð jafnréttisáætlana í ráðuneytinu og þeim stofnunum sem undir það heyra, sbr. lið 10.3 í framkvæmdaáætluninni?


Skriflegt svar óskast.