Ferill 447. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 745  —  447. mál.




Fyrirspurn



til sjávarútvegsráðherra um framkvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar í jafnréttismálum.

Frá Kristínu Ástgeirsdóttur.



     1.      Hvað líður skipan nefndar sem kanna á stöðu kvenna innan fiskvinnslunnar, sbr. lið 11.1 í framkvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar um aðgerðir til að ná fram jafnrétti kynjanna? Hvenær má vænta niðurstöðu úr könnuninni?
     2.      Hvað líður könnun á hlut kvenna sem sjálfstæðra atvinnurekenda í sjávarútvegi og tillögum um aðgerðir til að auka hlut þeirra, sbr. lið 11.2 í framkvæmdaáætluninni?
     3.      Hvað líður könnun á áhrifum langvarandi fjarvista sjómanna á líf þeirra og fjölskyldna þeirra, sbr. lið 11.3 í framkvæmdaáætluninni?
     4.      Er hafin könnun á stöðu jafnréttismála í ráðuneytinu og hjá þeim stofnunum sem undir það heyra, sbr. lið 11.5 í framkvæmdaáætluninni? Ef svo er, hvað hefur hún leitt í ljós?
     5.      Hvað líður gerð jafnréttisáætlana fyrir ráðuneytið og þær stofnanir sem undir það heyra, sbr. lið 11.5 í framkvæmdaáæltuninni?


Skriflegt svar óskast.