Ferill 449. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 747 — 449. mál.
Fyrirspurn
til utanríkisráðherra um framkvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar í jafnréttismálum.
Frá Kristínu Ástgeirsdóttur.
1. Hvað líður störfum samráðsnefndar utanríkisráðuneytis og félagsmálaráðuneytis um jafnrétti kynjanna í alþjóðastarfi, sbr. lið 13.1 í framkvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar um aðgerðir til að ná fram jafnrétti kynjanna?
2. Er búið að setja vinnureglur um sem jafnastan hlut kynjanna í stöðum hjá alþjóðlegum stofnunum, sbr. lið 13.2 í framkvæmdaáætluninni?
3. Er hafin könnun á stöðu jafnréttismála innan utanríkisráðuneytisins og hjá þeim stofnunum sem undir það heyra, sbr. lið 13.5 í framkvæmdaáætluninni? Ef svo er, hvað hefur sú könnun leitt í ljós?
4. Hvað líður gerð jafnréttisáætlana innan ráðuneytisins og hjá þeim stofnunum sem undir það heyra, sbr. lið 13.5 í framkvæmdaáætluninni?
5. Hafa verið haldin jafnréttisnámskeið fyrir þá starfsmenn sem vinna á vegum ráðuneytisins og undirstofnana þess að verkefnum í þróunarlöndum, sbr. lið 13.6 í framkvæmdaáætluninni?
Skriflegt svar óskast.