Ferill 454. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 752  —  454. mál.




Fyrirspurn



til samgönguráðherra um framboð gistirýma.

Frá Ísólfi Gylfa Pálmasyni.



     1.      Hver hefur verið árleg þróun á framboði gistirýma á Íslandi milli ára síðustu tuttugu ár?
     2.      Hvernig skiptist fjöldi gistirýma milli landshluta á þessu tímabili?