Ferill 460. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 758  —  460. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um kerfisbundið eftirlit með almennri heilsu tiltekinna aldurshópa.

Frá Hjálmari Árnasyni.



     1.      Telur ráðherra að til greina komi að boða alla einstaklinga tiltekins aldurshóps (t.d. 40 ára) til almenns eftirlits með heilsufari?
     2.      Hver yrði kostnaður við þetta?
     3.      Hverjir gætu annast slíkt eftirlit?
     4.      Telur ráðherra að sparnaður hlytist af slíkum aðgerðum til lengri tíma litið?