Ferill 469. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 774  —  469. mál.




Fyrirspurn



til samgönguráðherra um slys á Reykjanesbraut.

Frá Kristjáni Pálssyni og Katrínu Fjeldsted.



     1.      Hve mörg slys urðu á Reykjanesbraut sl. tvö ár samanborið við næstu fjögur ár þar á undan?
     2.      Er sýnileg breyting á slysatíðni vegna lýsingar brautarinnar?
     3.      Er hafinn undirbúningur að aðgerðum til að fækka slysum á Reykjanesbraut, svo sem tvöföldun hennar?