Ferill 499. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 811  —  499. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra um framkvæmd laga nr. 139/1998, um gagnagrunn á heilbrigðissviði.

Frá Hjörleifi Guttormssyni.



     1.      Hvernig verður staðið að kynningu réttar til að hafna þátttöku í gagnagrunni á heilbrigðissviði gagnvart Íslendingum sem búsettir eru erlendis þannig að þeir séu meðvitaðir um réttindi sín, sbr. 8. gr. laga um gagnagrunn á heilbrigðissviði, og geti auðveldlega not­fært sér þau?
     2.      Hvaða ráðstafanir hafa íslensk stjórnvöld gert til að standa við ákvæði samningsins um verndun mannréttinda og mannlegrar reisnar, sem undirritaður var af Íslands hálfu 4. apríl 1997, að því er varðar beitingu líffræði og læknisfræði?
     3.      Hver verða meginatriði reglugerðar um þverfaglega siðanefnd til að meta rannsóknir innan fyrirtækis rekstrarleyfishafa og fyrirspurnir sem berast? Hefur nefndin verið skipuð og ef svo er, hverjir eiga sæti í henni?
     4.      Hvaða reglugerðir hafa verið settar á grundvelli laga um gagnagrunn á heilbrigðissviði? Óskað er eftir að reglugerðir sem settar hafa verið fylgi svari ráðherra.


Skriflegt svar óskast.