Ferill 500. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 812  —  500. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra um greiðslur frá rekstrarleyfishafa gagnagrunns á heilbrigðissviði.

Frá Hjörleifi Guttormssyni.



     1.      Hversu hátt gjald er áætlað að rekstrarleyfishafi greiði:
                  a.      fyrir rekstrarleyfið fyrsta árið,
                  b.      vegna starfs nefndar um gerð og starfrækslu gagnagrunns á heilbrigðissviði,
                  c.      vegna annars kostnaðar sem tengist þjónustu og eftirliti með starfrækslunni?
     2.      Hversu háar greiðslur til ríkissjóðs er ráðgert að semja um við rekstrarleyfishafa, sbr. 5. mgr. 4. gr. laga nr. 139/1998?



Skriflegt svar óskast.