Ferill 506. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 818 — 506. mál.




Fyrirspurn



til dómsmálaráðherra um löggæslumenn í Kópavogi.

Frá Magnúsi Árna Magnússyni.



    Hvernig hyggst ráðherra bregðast við áskorun bæjaryfirvalda í Kópavogi um fjölgun lög­gæslumanna þar í bæ og þeirri staðreynd að fjöldi þeirra hefur staðið í stað síðasta áratuginn á meðan íbúum bæjarins hefur fjölgað um fjörutíu af hundraði?