Ferill 410. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 879 — 410. mál.
Svar
viðskiptaráðherra við fyrirspurn Gísla S. Einarssonar, Kristínar Halldórsdóttur og Sigríðar Jóhannesdóttur um ráðstöfunarfé ráðherra.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hvernig hefur verið varið 3 millj. kr. framlagi til ráðstöfunar samkvæmt ákvörðun ráðherra á lið 12-199 í fjárlögum 1998, sundurliðað eftir verkefnum?
Ákveðið hefur verið að verja 2,3 millj. kr. til að standa straum af sérstökum verkefnum á vegum Neytendasamtakanna í samræmi við þjónustusamning sem gerður hefur verið við samtökin, samkeppnisstofnun eru veittar 500 þús. kr. til athugana á samkeppni á dagvörumarkaði og 200 þús. kr. fara til verkefna á vegum viðskiptaráðuneytisins.