Ferill 549. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 886  —  549. mál.




Frumvarp til laga



um afnám verðtryggingar fjárskuldbindinga.

Flm.: Gísli S. Einarsson.



1. gr.

    Frá og með 1. júlí 1999 er öll verðtrygging fjárskuldbindinga með vísitölum óheimil, óháð stofnunartíma kröfunnar.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.


    Frumvarpið gerir ráð fyrir því að frá og með 1. júlí 1999 verði óheimilt að verðtryggja fjárskuldbindingar, hverju nafni sem nefnast, t.d. innlán og útlán í bankakerfinu og viðskipta­bréf hvers konar. Frumvarpið tekur jafnt til samninga sem gerðir eru eftir 1. júlí 1999 og samninga sem gerðir hafa verið fyrir þann tíma. Verði frumvarpið að lögum munu verðtrygg­ingarákvæði fjárskuldbindinga falla úr gildi. Af þeim sökum verða samningsaðilar að endur­skoða slík ákvæði sem í gildi eru við gildistöku laganna.