Ferill 557. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 903  —  557. mál.




Fyrirspurn



til utanríkisráðherra um viðbrögð við hermdarverkum.

Frá Össuri Skarphéðinssyni.



     1.      Eru til ítarlegar áætlanir um samræmdar aðgerðir varnarliðsins, lögreglu í Leifsstöð og annarra lögreglusveita um viðbrögð ef hermdarverkamenn freista yfirtöku Leifsstöðvar með vopnavaldi?
     2.      Hver hefur forustu um gerð slíkra áætlana?
     3.      Hafa slík viðbrögð verið æfð?
     4.      Eru áætlanir til um viðbrögð við flugráni á flugstjórnarsvæði Keflavíkurflugvallar?
     5.      Hafa viðbrögð við flugráni verið æfð?