Ferill 565. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 925  —  565. mál.




Fyrirspurn



til forsætisráðherra um lagabreytingar vegna hækkunar sjálfræðisaldurs.

Frá Jóhönnu Sigurðardóttur.



     1.      Hvaða efnisbreytingar þarf að gera á lögum í kjölfar hækkunar sjálfræðisaldurs og hvaða áhrif munu þær hafa á kjör og aðbúnað barna á aldrinum 16–18 ára og aðstand­enda þeirra?
     2.      Hvenær stendur til að leggja nauðsynlegar lagabreytingar fyrir Alþingi, sbr. 1. lið, og hvaða útgjöld munu þær hafa í för með sér?


Skriflegt svar óskast.